Spegillinn 30.04.2019
Umsjón: Pálmi Jónasson
Yfirmaður heraflans í Venesúela varar við blóðbaði reyni stjórnarandstæðingar að steypa Nicolas Maduro forseta f stóli. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur andstæðar fylkingar til að forðast ofbeldi.
Stjórn Samherja og forstjóri fyrirtækisins hafa kært Má Guðmundsson og fjóra aðra stjórnendur Seðlabanka Íslands til lögreglu fyrir að hafa misbeitt valdi sínu um árabil. Stjórnendur Samherja hafa einnig ákveðið að höfða skaðabótamál gegn bankanum vegna rannsóknar á meintum gjaldeyrisbrotum.
Tvær flugferðir til Tenerife menga jafn mikið og fólksbíll á heilu ári. Umhverfisverkfræðingur segist hafa rosalegt flugviskubit yfir tíðum ferðum til útlanda.
Gunnar Jóhann Gunnarsson játaði að hafa orðið Gísla Þór Þorsteinssyni að bana þegar hann var handtekinn í norður Noregi á laugardag.
Landsmenn þurfa að horfast í augu við það að þeir verða að draga úr losun frá flugi, segir Sigurður Thorlacius, umhverfisverkfræðingur hjá Eflu verkfræðistofu - en hann þjáist af flugviskubiti eftir að hafa farið margar ferðir til útlanda á síðasta ári. Vaxandi vitund er hér um landi um áhrif flugs á loftslagsbreytingar. Þrjú tonn af koltvísýringi losnuðu út í andrúmsloftið vegna ferða Sigurðar á síðasta ári sem er helmingi meira en meðal fólksbíll losar á einu ári. Bergljót Baldursdóttir segir frá og talar við Sigurð Thorlacius.
Akihito Japanskeisari afsalaði sér í dag keisarartign en þetta er í fyrsta skipti í tvö hundruð ár sem það gerist. Akihito er yfirleitt elskaður og dáður af þegnum sínum og valdtími hans er kenndur við frið. Krónprinsinn tók formlega við hásæti tryggðarblómsins á miðnætti að staðartíma. Pálmi Jónasson fjallar um málið.
Skólaforðun er vaxandi vandamál og Fljótsdalshéraði ætlar félagsþjónustan að ráðast í átak til að hjálpa börnum sem glíma við slíkan vanda. Hann getur að hluta legið hjá foreldrum og því nær aðstoðin líka til foreldra. Þegar börn mæta ekki í skólann eða þola ekki við innan veggja skólans getur það verið vísbending um alvarleg vandamál. Sé ekkert að gert geta afleiðingarnar orðið alvarlegar. Rúnar Snær Reynisson segir frá og talar við Júlíu Sæmundsdóttur er félagsmálastjóri á Fljótsdalshéraði.