Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, þingmenn Flokks fólksins, hafa verið reknir úr flokknum. Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason þingmenn Miðflokksins eru á leið í leyfi.
Vinnustaðasálfræðingur segir að illt umtal og umræður eins og þingmannanna sex á barnum Klaustri séu áfall fyrir vinnustaðinn Alþingi og geti haft slæm og hamlandi áhrif á störf þingsins.
Forstjóri Wow Air segir að fjárfesting félagsins Indigo Partners í flugfélaginu sé umtalsverð. Hann vill þó ekki greina frá upphæðum, innihaldi samningaviðræðna eða hversu stóran hlut félagið eignast í Wow Air.
Samgönguráðherra segir að ríkisstjórnin sé upplýst um framvindu mála á flugmarkaði. Fjármálaráðherra segir að óvissan sé slæm og vonast eftir niðurstöðu sem fyrst
Bandaríkjaforseti var sigri hrósandi þegar nýr viðskiptasamningur Norður-Ameríkuríkja var undirritaður í dag. Hann segir samninginn vera fyrirmynd viðskiptasamninga framtíðarinnar.
Tveir af þingmönnunum sex sem voru á barnum Klaustri, þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason þingmenn Miðflokksins, eru á leiðinni í leyfi vegna Klaustursupptökunnar. Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason hafa verið reknir úr Flokki fólksins en sitja áfram á þingi, óháð brottrekstrinum.
Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur segir að illt umtal eins og heyra má í Klaustursupptökunum sé áfall fyrir allan vinnustaðinn Alþingi. Búast megi við að það hafi slæm og hamlandi áhrif á störf þess. Bergljót Baldursdóttir talar við Þórkötlu Aðalsteinsdóttur.
Ekki er óalgengt í Svíþjóð að stjórnmálamenn segi af sér eða hrekist úr stjórnmálum vegna grófrar, pólitískrar spillingar eða óvarlegrar framgöngu á Facebook. Kári Gylfason segir frá.
Nýr forseti og ný ríkisstjórn í Mexíkó standa frammi fyrir snúnum vanda sem sífellt vindur upp á sig. Forsetinn, vinstrimaðurinn Andrés Manuel López, og ríkisstjórn hans taka við völdum á laugardag, 1. desember. Kristján Sigurjónsson segir frá.