Spegillinn

Spegillinn 30.nóvember 2021


Listen Later

Spegillinn 30.nóvember 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Ríkissjóður tekur á sig högg vegna lána til Vaðlaheiðarganga hf. Félagið gat ekki endurgreitt skuld á gjalddaga í maí. Rekstur ganganna stendur ekki undir þeim áætlunum sem lánveitingin byggði á, segir í fjárlagafrumvarpinu.
Ímynd íslenska hestsins hefur skaðast vegna framferðis sumra sem stunda blóðmerarækt, segir hrossaræktandi.
Sóttvarnarlæknir segir ekki síðri vörn gegn kórónuveirusmiti að fá örvunarskammt með öðru bóluefni en fólk hafi fengið í fyrsta eða öðrum skammti
Finna þarf leiðir til að brúa tekjutap ríkissjóðs vegna minnkandi gjalda af jarðefnaeldsneyti sökum orkuskipta, segir fjármálaráðherra.
Grikkir sem orðnir eru sextíu ára og eldri verða skyldaðir að mæta í bólusetningu gegn kórónuveirunni frá byrjun næsta árs. Að öðrum kostum verða þeir að greiða sekt.
Hafin er smíði á fyrsta björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Finnlandi og gert er ráð fyrir að það verði afhent Vestmannaeyingum á Goslokahátíð á næsta ári. Skipið kostar 285 milljónir króna.
Ríkið greiðir helminginn á móti Slysavarnafélaginu.
Lengri umfjöllun:
Formaður Bandalags íslenskra listamanna, Erling Jóhannesson, sér sóknarfæri í því að færa listir og menningu í nýtt ráðuneyti. Fyrst um sinn hafi hugmyndin um samkrull viðskipta, ferðaþjónustu og lista þó strokið mörgum listamönnum öfugt. Í stjórnarsáttmálanum er fjallað um menningu sem mikilvægt aðdráttarafl til að laða hingað ferðamenn. Áform um stefnumótun eru nokkuð áberandi í sáttmálanum, það á til dæmis að ráðast í heildarendurskoðun á tónlistargeiranum, vinna þarfagreiningu vegna óperustarfsemi með það að markmiði að setja á laggirnar Þjóðaróperu og hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun í menningarmálum til ársins 2030. Það er lítið um stór loforð en þó lofa stjórnvöld auknum stuðningi við kvikmyndagerð með hærri endurgreiðslum á skýrt afmörkuðum þáttum - þetta á að verða til þess að fleiri stór verkefni verði unnin alfarið hér. Erling fagnar því, þetta sé mikilvæg, alþjóðleg starfsemi sem skapi ekki bara störf og tekjur. Annað loforð er að finna Listaháskóla Íslands framtíðarhúsnæði en fyrir kosningar var kynnt að hann fengi athvarf í Tollhúsinu við Tryggvagötu. Erling bendir á að þessu hafi verið lofað áður. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Erling.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir 2022 í morgun. Þar kom fram að ríkissjóður yrði rekinn með 169 milljarða króna halla á næsta ári, sem er þó 120 milljörðum krónum minni
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners