Þingmenn stjórnarandstöðu kröfðust þess í dag að frumvarp meirihluta atvinnuveganefndar um lækkun veiðigjalda yrði tekið af dagskrá Alþingis. Þeim varð að ósk sinni.
Oddviti Viðreisnar í borginni segir að verkaskipting milli flokkanna sem nú ræða um myndun meirihluta sé enn opin. Fyrsti formlegi fundur flokkanna var í dag.
Kjarasamningur ljósmæðra við ríkið gildir út mars á næsta ári og laun hækka um tæp 5% á samningstímanum. Ljósmæður sitja nú á fundi þar sem samningurinn er kynntur.
Íslendingar eru mun einsleitari nú heldur en þeir voru við landnám. Þeir voru mjög blandaðir og stór hluti var keltneskur. Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Stjórnvöld í Washington ætla frá og með miðnætti að setja allt að 25% verndartolla á vörur úr áli og stáli frá Evrópusambandinu.
Rjúpu fjölgaði mikið alls staðar á landinu nema á Suðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi.
Mælir kerfið það sem það á að mæla? Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Eybjörgu Hauksdóttur framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar og Pétur Magnússon forstjóra Hrafnistu.
Svikasaga united Silicon. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Réttur til að eyða gögnum. Arnar Páll Hauksson talar við Eirík G. Guðmundsson þjóðskjalavörð.