Spegillinn 31.5.2019
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir
Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði sýknað íslenska ríkið af kröfu Sigríðar Sæland Jónsdóttur í máli um útborgun lífeyris í ársbyrjun 2017. Heildarskerðing hjá öllum ellilífeyrisþegum landsins á því tímabili sem um ræðiar var um fimm milljarðar króna.
Tólf þingmenn breska Íhaldsflokksins sækjast eftir því að taka við leiðtogahlutverkinu af Theresu May forsætisráðherra. Hún lætur af því að viku liðinni.
Hátt í 240 sólarstundir voru í maí í Reykjavík. Þetta er umtalsvert meiri sól en skein á borgarbúa í vætusömum maí í fyrra. Þá voru aðeins 150 sólarstundir. Rætt við Kristínu Björgu Ólafsdóttur. Kristín Sigurðardóttir talaði við hana
Landsréttur mildaði í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Þorsteini Halldórssyni sem var ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn ungum pilti. Þorsteinn var dæmdur í sjö ára fangelsi í héraðsdómi en Landsréttur mildaði refsinguna niður í fimm og hálft ár.
Þróunarstjóri hjá markaðs- og tæknifyrirtækinu Svartagaldri segir að þörf sé fyrir óháð samtök eða síður hér á landi eins og til eru víða erlendis þar sem fólk er varað við blekkingum. Mjög auðvelt er að breyta bæði rödd fólks og myndum með grervigreind og eina svarið við því sé gagnrýnin hugsun. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Þór Matthíasson, þróunarstjóri hjá markaðs- og tæknifyrirtækinu Svartagaldri
Mesta líkur eru nú taldar á því að vinstriflokkarnir sigri í dönsku þingkosningunum og að formaður Sósíaldemókrata verði næsti forsætisráðherra. Kosið verður á miðvikudaginn í næstu viku. Arnar Páll Hauksson ræddi við Sigurð Ólafsson stjórnmálafræðing og framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins
og svo heyrum við af þráhyggju indverskra kvenna fyrir ljósu hörundi sem á að vera grundvöllur frægðar og frama í lífinu. Pálmi Jónasson tók saman