Spegillinn

Spegillinn 31. október 2018


Listen Later

Skömmu fyrir fjögur í dag var tilkynnt um eld í einbýlishúsi á Selfossi. Slökkvistarf stendur enn yfir en mikill eldur var í húsinu og ekki unnt fyrir slökkvilið að komast inn vegna gríðarlegs hita. Húsráðandi og gestkomandi kona eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á eldsupptökum. Grunur er um að karl og kona hafi verið á efri hæð hússins þegar eldurinn kom upp. Þeirra er nú leitað. Sérfræðingar tæknideildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðir til aðstoðar við rannsókn málsins.
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna fordæma írönsk stjórnvöld vegna tilræðis við landflótta Írana sem búa á Norðurlöndunum.
Formaður Þroskahjálpar segir dæmi um að laun þroskahamlaðs fólks séu 1500 krónur á mánuði. Algengt sé að greiddar séu 10 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir starf á vinnu- og verkþjálfunarstöðum.
Húsavíkurhöfðagöng eru hluti af vegakerfinu en ekki einkavegur fyrir PCC. Þetta kom fram í svari stjórnvalda við fyrirspurn eftirlitsstofnunar EFTA árið 2016.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að skynsamlegt væri að semja um einhvers konar kyrrstöðusamninga nú þegar hagsveiflan hefur náð hámarki.
Bæði fjármálaráðherra og framkvæmdastjóri SA segja að reynslan sýni að krónutöluhækkanir breytist í prósentuhækkanir og leiti upp allan launastigann. Forseti ASÍ segir að þær gangi ekki eftir þegar efsta fitulagið í samfélaginu reikni sér alltaf bónus ofan á þær krónutöluhækkanir sem lægstu laun eru að hækka um. Arnar Páll Hauksson.
Klukkunni var seinkað um klukkustund í Evrópu, síðastliðinn sunnudag, og kannski í síðasta skipti. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögu um að á næsta ári verði flýting og seinkun klukkunnar aflögð. Ekki er einhugur um tillöguna meðal aðildarríkjanna. Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
Ný bók um alþjóðlegu fjármálahremmingarnar 2008 eftir sagnfræðinginn Adam Tooze sýnir glögglega samhengið í fyrirgreiðslum bandaríska seðlabankann: Bandaríkin aðstoðuðu banka og lönd sem vörðuðu bandaríska hagsmuni enda gætu önnur lönd leitað til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Sigrún Davíðsdóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners