Forsvarsmenn fyrirtækja sem stunda undirboð og kennitöluflakk verða settir í tímabundið bann við stjórnun fyrirtækja, samkvæmt tillögum starfshóps sem skipaður var til að taka á vandanum.
Einkareknir fjölmiðlar munu eiga rétt á 25% endurgreiðslu af beinum launatengdum kostnaði samkvæmt nýju frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Búist er við að framlag ríkisins nemi allt að 400 milljónum á ári.
Engar vísbendingar eru um að veiðistofn loðnu sé að stækka og að meiri loðna sé að ganga á miðin við landið.
Nýtt sjúkrahótel við Landspítalann var formlega afhent í dag. Búist er að fyrstu sjúklingarnir dvelji þar í byrjun apríl.
Efnahagssamdráttur hefur verið á Ítalíu síðastliðið hálft ár, sem þýðir að kreppa er formlega gengin í garð á ný.
Rætt um kuldakastið sem gengur yfir landið. Arnar Páll talar við Eiríkur Hjálmarsson, talsmann Veitna og Helga Jóhannesson, framkvæmdastjóra Norðurorku.
Fjölskylda á Kjalarnesi gekk með hugmynd í maganum í nokkur ár, og ákvað svo, eftir að byggingareglugerð var rýmkuð, að láta slag standa og reisa 35 fermetra hús í garðinum. Í haust flutti elsti sonurinn, 19 ára, inn. Spegillinn heldur áfram umfjöllun um fólk sem valið hefur óhefðbundnar lausnir í húsnæðismálum. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Magnús H. Ólafsson, Björn Karlsson forstjóra Mannvirkjunarstofnunar og Ólöfu Örvarsdóttur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs