Spegillinn

Spegillinn 31.janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 31.janúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Fjármálaráðherra segist hafa áhyggjur af vaxandi verðbólgu, en ekki sé auðséð til hvaða ráða sé hægt að grípa. Staðan kalli hins vegar á viðbrögð.
Bólusetning 5 til 11 ára gamalla barna nýtur stuðnings mikils meirihluta landsmanna.
Herforingjastjórnin í Mjanmar ákærði í dag Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, fyrir kosningasvik.
Búnaður í nýrri skólphreinsistöð á Akureyri kom í veg fyrir að tæplega 20 tonn af rusli sem sturtað var niður í klósettum á Akureyri endaði í Eyjafirði.
Yfir 30 eftirlegukindur, sem leitað hefur verið að á Norður- og Austurlandi síðan í haust, skiluðu sér af fjalli í síðustu viku og um helgina.
Helmingur ráðherra ríkisstjórnarinnar ber annað starfsheiti í lok dags heldur en þegar þeir vöknuðu í morgun. Ný nöfn ráðuneyta eftir uppskiptingu stjórnarráðsins voru staðfest með forsetaúrskurði í dag.
Lengri umfjöllun:
Skipulags- og húsnæðismál eru meðal stóru verkefna sveitarfélaganna og þar eru líka stórir snertifletir við ríkið. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir gott að þessi mál séu nú í einu og sama ráðuneytinu. Hann telur að sé ágreiningur milli sveitarfélaga um framkvæmdir á borð við byggðalínur eða veglagningu væri heppilegra að til væri svæðisskipulag sem þau yrðu þá að laga sig að. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð Inga.
Þess var minnst á Norður Írlandi í gær að 50 ár voru liðin frá Blóðuga sunnudeginum í borginni Derry eða Londonderry. Fjallað var ítarlega um blóðuga sunnudaginn í tveimur útvarpsþáttum Gunnars Hanssonar og Sólveigar Jónsdóttur á Rás 1 um helgina . Þau fóru til Derry fyrr í þessum mánuði og ræddu meðal annars við fólk sem tók þátt í göngunni og varð vitni að drápunum. Sólveig er stjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla í Skotlandi og kynnti sér vel málefni Norður Írlands í námi sínu. Kristján Sigurjónsson talar við Sólveigu um ástandið á N-Írlandi í dag og framtíðarhorfur.
Mark úr vítakasti eftir að venjulegur leiktími var liðinn tryggði Svíum eins marks sigur á Spánverjum, 27-26, í úrslitaleik Evrópumótsins í gær. En handbolti er langt frá því að vera einn um hituna þegar íþróttir eru annars vegar í Svíþjóð. Kári Gylfason segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners