Miðstjórn ASÍ líkir starfsháttum Icelandair við viðskiptahætti Primera Air í ljósi þess að félagið hafi sagt upp starfsfólki og útvistað verkefnum þeirra til Eystrasaltsríkja þar sem laun og starfskjör séu önnur og verri.
Ekkja Erítreumannsins, sem lést eftir að græddur var í hann plastbarki, kannar nú hvort hún á rétt á bótum.
Eldri hjón óttast að sitja uppi með útgjöld vegna gistingar sem þau geta ekki notað eftir að Wow hætti flugi til Edinborgar. Flugfélagið endurgreiðir aðeins flugfarið en ekki hótelgistingu sem pöntuð var á vef félagsins.
Ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að ógilda leyfi tveggja fyrirtækja fyrir mörgþúsund tonna laxeldi í Patreksfirði og Tálknafirði kann að vera fordæmisgefandi. Þetta segir umhverfisráðherra. Hann telur þörf á að ráðast í aðgerðir, bæði til skemmri og lengri tíma, vegna málsins.
Konan sem sakar fótboltakappann Cristiano Ronaldo um nauðgun vonast til að málið verði til þess að fleiri þolendur stigi fram, óháð því hversu frægur, ríkur eða valdamikill gerandinn kunni að vera.
Þó að þorri jarðarbúa telji sig líklega hafa nægjanlegar sannanir þess að jörðin sé hnöttótt álíta þónokkrir að jörðin sé flöt. Bandaríski körfuboltamaðurinn Kyrie Irving baðst fyrr í vikunni afsökunar á því að hafa haldið því fram opinberlega að jörðin sé flöt.