Komiði sæl og velkomin að Speglinum. Umsjónarmaður er Björn Friðrik Brynjólfsson.
Landlæknir ætlar að láta meta þörfina fyrir taugalækna og aðgengi að þeim, áður en hann tjáir sig frekar um úrskurð heilbrigðisráðuneytisins, um að synja nýútskrifuðum taugalækni um aðild að rammasamning Sjúkratrygginga.
Landhelgisgæslan varar við hafís sem er óvenjunálægt landi eða tólf og hálfa sjómílu norður af Hælavíkurbjargi.
Þrjátíu og þrír eru látnir og um þrjú hundruð manns slösuð, eftir eldgosið sem hófst í fjallinu Fuego í Gvatemala í gær.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fullkominn rétt til að náða sjálfan sig fyrir hvaða afbrot sem er. Trump lýsti þessu yfir á Twitter, í tengslum við gagnrýni sína á rannsókn á meintum tengslum starfsmanna kosningabaráttu sinnar við rússneska embættismenn.
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Adrift, halaði inn 1,2 milljarða króna í tekjur um nýliðna frumsýningarhelgi og var þriðja aðsóknarmesta myndin í Bandaríkjunum.
Formaður Eflingar bindur vonir við að ójöfnunarvísitala eða -stuðlull verði settur í kjarasamninga til að sporna við miklum hækkunum forstjóralauna.
Yfirlæknir og sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins, segir skimun fyrir brjóstakrabbameini alltaf hafa verið umdeilda, en er fullviss um að ávinningurinn sé meiri en skaðsemin. Breskir sérfræðingar sendu nýlega frá sér yfirlýsingu um að skaðinn sem reglubundin skimun getur valdið kunni að vera meiri en ávinningurinn.
Skimun fyrir brjóstakrabba ekki skaðlaus. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Ágúst Inga Ágústsson yfirlækni og sviðsstjóra leitarsviðs Krabbameinsfélagsins
Vill koma á ójafnaðarvísitölu. Arnar Páll Hauksson ræddi við Sóveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar.
Viðbúnaður björgunarsveita í sumar. Björn Friðrik Brynjólfsson ræddi við Jónas Guðmundsson hjá Landsbjörg.