Fimmtán hafa þegar misst vinnuna í Fjarðabyggð vegna loðnubrests. Bæjarstjórinn segir að sveitarfélagið verði að draga saman seglin, finnist engin loðna. Fjarðabyggð verður fyrir 260 milljóna króna tekjutapi verði algjör loðnubrestur. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóra.
Forsvarsmenn Strætós bs segja að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir bílstjóra bitni eingöngu á farþegum og rekstri Strætós en ekki á fyrirtækjunum sem bílstjórarnir starfa hjá. Höskuldur Kári Schram sagði frá og ræddi við Ástríði Þórðardóttur, staðgengil framkvæmdastjóra hjá Strætó.
Bandarísk stjórnvöld segja að skjótt verði brugðist við ef öryggi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela verður ógnað. Hann sneri heim í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ástand í málefnum geðsjúkra fanga sé óviðunandi. Hún kynnir samning um úrbætur á allra næstu dögum. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar spurði heilbrigðisráðherra um erfiða stöðu geðsjúkra fanga: Fangelsismálastofnun hafi ítrekað beint sjónum stjórnvalda að ástandinu og fengið umboðsmann Alþingis til liðs við sig.
Þjónusta við fólk með heilabilun er allt of flókin. Mjög margir koma að henni og ekki stefna allir í sömu átt, segir Jón Snædal sérfræðingur í öldrunarlækningum sem tekið hefur að sér að móta heildstæða stefnu í málaflokknum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Jón.
-----------
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að hafa það í huga þegar það ferðast með ung börn að mislingafaraldur geisi sums staðar í heiminum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórólf.
Notendastýrð persónuleg aðstoð er óðum að slíta barnsskónum á Íslandi en ekki án vaxtaverkja. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
Íslendingar og Svisslendingar eru oft á sitt hvorum endanum þegar bornar eru saman hagtölur ríkja Efnahags- og framfarastofunarinnar OECD og það á líka við um verkföll. Á tímabili áttu Íslendingar þar metið á meðan fyrirbærið þekktist varla í Sviss. En hvers vegna fara Svisslendingar ekki í verkföll, Jón Björgvinsson leitaði svara við því.