Spegillinn

Spegillinn 4. Nóvember


Listen Later

Enn er útilokað að segja til um hvort Donald Trump eða Joe Biden fór með sigur af hólmi í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Munur á fylgi frambjóðendanna er hverfandi í nokkrum ríkjum þar sem enn er verið að telja atkvæði. Ásgeir Tómasson segir frá.
Tuttugu og níu greindust með COVID-19 innanlands í gær, þar af voru átta utan sóttkvíar. Nú eru 798 manns í einangrun með COVID-19 og átján hundruð fimmtíu og einn í sóttkví. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að faraldurinn sé ekki að versna og með góðum vilja megi segja að kúrfan sé að fara niður hjá þeim sem eru utan sóttkvíar.
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir málefni framhaldsskólanemenda verða í algjörum forgangi þegar hægt verður að létta á sóttvörnum. Komið sé að þolmörkum, þjóðhagslegt tap af brottfalli nemenda sé of mikið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá.
Íbúi og starfsmaður í Foldabæ, heimili fyrir konur með heilabilun í Reykjavík, greindust með COVID-19 í síðustu viku. Allir hinir íbúarnir sjö, og sjö starfsmenn til viðbótar, eru í sóttkví segir Jórunn Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman.
Sjóprófi vegna hópsýkingar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið frestað til 22. nóvember. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá.
Guðni Jóhannesson, forseti Íslands verður í sóttkví í kjallaranum á Bessastöðum til mánudags. Starfsmaður á Bessastöðum greindist með kórónuveiruna.
----
Kjördagur var í bandarísku forsetakosningunum í gær, nóttin leið og dagurinn langt kominn, menn telja og telja og enn ekki fullljóst hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin, þó ýmislegt bendi til þess að Joe Biden sé að mjakast fram úr Donald Trump í ríkjum þar sem enn er ekki ljóst hver hreppir kjörmennina. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Hrund Logadóttur, stjórnmálafræðing sem stýrir miðstöð Norðurslóða við Harvardháskóla og við Þórð Pálsson, íbúa og kjósenda í Kansas.
Utanríkisstefna Bandaríkjanna ræðst af hagsmunum þeirra og ýmsum þáttum innanlands vestra jafnvel frekar en því hvort Donald Trump eða Joe Biden verður forseti segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Sunna Valgerðardóttir ræðir við hann.
Rösklega 200 lítil fyrirtæki og einyrkjar í ferðaþjónustu hafa sent stjórnvöldum ákall um að grípa verði til aðgerða strax til að forða að þeim frá því að lenda í djúpum skuldavanda. Arnar Páll Hauksson ræðir við Jónu Fanneyju Svavarsdóttur, sem rekur Eldhúsferðir.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Markús
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners