Spegillinn

Spegillinn 4.apríl 2022


Listen Later

Spegillinn 4.apríl 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Bandaríkjaforseti vill að að Pútín Rússlandsforseti verði dreginn fyrir stríðsglæpadómstól vegna fjöldamorðanna í Bucha í Úkraínu.
Rætt við Arnar Björnsson fréttamann sem nýkominn er til Varsjár til að fygjast með móttöku flóttamanna frá Úkraínu.
Sigurður Ingi Jóhannsson hefur beðist afsökunar á orðum sem hann viðhafði um húðlit framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í tengslum við Búnaðarþing fyrir helgi.
Stjórnarskipti eru framundan á Grænlandi. Samsteypustjórnin sem mynduð var eftir kosningar í apríl í fyrra lifði í tæpt ár.
Einn af hverjum tíu nemendum á unglingastigi segir að lesblinda hafi mikil eða mjög mikil áhrif á frammistöðu í námi. Félag lesblindra á Íslandi segir þetta ekki koma á óvart og hefur sent ákalll til stjórnvalda.
Meirihluti nemenda í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskóla hefur horft á klám. Allt að þrefalt fleiri strákar en stelpur á þessum aldri hafa horft á klám og þeir eru ánægðari með áhorfið en stelpurnar.
Lengri umfjöllun:
Rússar hafa verið sakaðir um stríðsglæpi í Úkraínu. Skelfilegar fregnir bárust um helgina frá bænum Bútsja, skammt frá Kænugarði, þar sem almennir borgarar voru teknir af lífi úti á götu úti. Rússar eru sagðir hafa framið stríðsglæpi, fjöldamorð og jafnvel þjóðarmorð. Kallað hefur verið eftir hertum aðgerðum gegn Rússum vegna voðaverkanna, til að mynda innan Evrópusambandsins. En hvað eru stríðsglæpir? Er ekki glæpur að ráðast inn á landsvæði, myrða þar allt sem á vegi verður, hvort sem þeir eru í búningi eða ekki? Hvar liggur þröskuldurinn á milli stríðsreksturs og stríðsglæpa? Bjarni Rúnarsson ræðir við Þórdísi Ingadóttur, prófessor við lögfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Óhugnanlegar myndir af ætluðum voðaverkum rússneska hersins í bænum Bútsja í Úkraínu vöktu mikinn óhug um heimsbyggð alla í gær. Þar virtist sem óbreyttir borgar, karlar, konur og börn, hefðu verið myrtir með köldu blóði. Hundruð líka fundust á götum, í kjöllurum húsa og fjöldagröfum í bænum. En hefur þessi afhjúpun einhver áhrif á gang stríðsins? Brynja Huld Óskarsdóttir varnar- og öryggismálasérfræðingur óttast að átökin eigi eftir að harðna og að átökin geti þróast í þjóðernisátök. Kristján Sigurjónsson ræðir við Brynju Huld.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners