Spegillinn

Spegillinn 5. mars 2019


Listen Later

Fjórir hafa nú greinst með mislinga hér á landi. Um miðjan febrúar kom maður með mislinga hingað í flugi og þrír hafa greinst sem smituðust um borð, tvö börn og einn fullorðinn. Dagný Hulda Erlendsdóttir segir frá. Rætt við Ásgeir Haraldsson, yfirlækni á Barnaspítala Hringsins.
Menntamálaráðherra ætlar að verja einum og hálfum milljarði króna í stórsókn í menntamálum. Talsmenn kennara segja að fókusinn sé nú kominn á réttan stað - á mannauðinn í menntakerfinu. Rætt við Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, formann Kennarasambands Íslands og Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, forseta menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Alþingismönnum sýnist hverjum sitt um innflutning á hráu kjöti og tala ýmist ógn við lýðheilsu og búfé eða hræðsluáróður og lýðskrum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir segir frá umræðum um frumvarp landbúnaðaráðherra á Alþingi, brot úr ræðum Ásgerðar Gylfadóttur (B), Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur (D) og Þorsteins Víglundssonar (C).
Lagt er til að skimun fyrir krabbameini verði færð frá Krabbameinsfélagi Íslands til heilsugæslunnar og gerð gjaldfrjáls samkvæmt tillögum sem landlæknir og heilbrigðisráðherra kynntu í dag. Enn fremur er lagt til að stofnuð verði sérstök stjórnstöð til að skipuleggja og semja um framkvæmd skimunar sem yrði þá tekin inn í opinbera heilbrigðisþjónustu. Höskuldur Kári Schram ræðir við Ölmu Möller, landlækni.
Ávinningurinn er svo mikill, að það að vera verkstjóri allan sólarhringinn er bara peanuts miðað við það. Þetta segir Brandur Bjarnason Karlsson sem nýlega fékk notendastýrða persónulega aðstoð. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við hann um lífið með NPA, verkstjórahlutverkið og mörkin í samskiptum við aðstoðarfólk og við kærustu hans, Ölmu Ösp Árnadóttur.
Danske Bank varð uppvís að peningaþvætti í útibúi í Eistlandi. Nordea bankinn virðist einnig hafa þvættað fé um árabil, meðal annars í útibúi við Vesturport í miðborg Kaupmannahafnar. SIgrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners