Bandaríkjaforseti vill leita til dómstóla og láta ógilda úrslit í lykilríkjum þar sem talning sýnir að Joe Biden hafi fengið fleiri atkvæði en hann. Sú niðurstaða hafi verið fengin með svikum. Enn er beðið eftir úrslitum í sex ríkjum.
Björgunarsveitir hafa farið í útköll á fjórum stöðum á landinu í dag vegna foktjóns, að sögn Jónasar Guðmundssonar, verkefnastjóra Slysavarna hjá Landsbjörg. Sigurður Jónsson veðurfræðingur segir veðrið hvað verst á Snæfellsnesi en ganga niður í kvöld.
Nærri tólf hundruð börn bíða eftir meðferð við sálrænum og geðrænum vanda þetta kom fram í sérstakri umræðu á Alþingi sem Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólkssins hóf. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra segir að það beri að forgangsraða í þágu geðheilsu og í þágu barna. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman.
Það er ótækt að tekjur af störfum bakvarða skerði ellilífeyri - en skerði ekki námslán, að mati Þórunnar Sveinbjörnsdóttur, formanns Landssambands eldri borgara.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði í dag með Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um viðskipta- og efnahagsmál ríkjanna. Andri Yrkill Valsson talaði við hann.
Samstarf Heilbrigðisstofnunar Austurlands við tvo lækna sem komu austur og sinntu sjúklingum, sparaði Sjúkratryggingum 25 milljónir í ferðakostnað á einu ári. Rúnar Snær Reynisson sagði frá.
------------
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir mál málanna í komandi kosningum að leita leiða til að fyrirtæki nái fyrri styrk svo þau geti skilað auknum skatttekjum inn í samfélagið. Arnar Páll Hauksson ræddi við hann.
Enn sitja talningarmenn að störfum vestur í Bandaríkjunum og ekki ljóst hver verður forseti þar næstu fjögur árin. Mjótt er á munum víða en skoðanakannanir undanfarnar vikur sýndu forskot Joes Bidens demókrata meira en raunin varð. Þegar Trump var kosinn nokkuð óvænt fyrir fjórum árum í embætti forseta var mikið talað um að skoðanakannanir hefðu ekki gefið rétta mynd af stuðningi við hann og telja sumir það sama geta endurtekið sig í ár. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir er forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, segir kannanagerðar fólk ævinlega fylgjast spennt með því hvort úrslitum og könnunum ber saman. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hanna.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta tafði útgáfu breskrar þingnefndarskýrsla um rússneska íhlutun í bresk stjórnmál um meira en hálft ár. Þverpólitískur hópur þingmanna þrýstir nú á stjórnina um aðgerðir. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tækn