Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði í dag frá beiðni laxeldisfyrirtækja um að fresta ákvörðun um að rekstarleyfi þeirra falli úr gildi. Nefndin telur að hún geti ekki tekið slíka ákvörðun. Málið er komið á borð umhverfisráðherra og sjávarútvegsráðherra.
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum Glitnis ætti erindi til almennings.
Starfsgreinasambandið leggur fram sameiginlega kröfugerð í komandi kjarasamningum fyrir hönd allra aðildarfélaga sambandsins. Tímamót segir formaður þess.
Minkabændur vilja gera þriggja ára samning við ríkið til að bjarga greininni.Þriggja ára taprekstur hefur skapað versta ástand í minkarækt hér í tuttugu ár.
Samtökin Hollvinir Hornafjarðar vilja að samgönguráðherra beiti sér fyrir því að vinna við lagningu vegar um Hornafjörð verði stöðvuð og að frekari framkvæmdir verði endurskoðaðar áður en lengra er haldið.
Ljósastaurar geta sinnt stærra hlutverki en þeir hafa gert hingað til. Þetta segir verkefnisstjóri snjallborgarverkefnis Reykjavíkurborgar. Borgin er farin að huga að 5G-væðingu og ljósastaurar geta þar orðið lykilinnviðir.
Ljósastaurar geta sinnt stærra hlutverki en þeir hafa gert hingað til. Þetta segir verkefnisstjóri snjallborgarverkefnis Reykjavíkurborgar. Borgin er farin að huga að 5G-væðingu og ljósastaurar geta þar orðið lykilinnviðir.
Þau eru tvö sem deila friðarverðlaunum Nóbels í ár. Bæði hafa þau barist gegn kynferðisofbeldi á átakasvæðum. Breið sátt ríkir að þessu sinni um valið á friðarverðlaunahöfunum en saga Nóbelsverðlaunanna geymir ótal frásagnir af umdeildum verðlaunahöfum.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður. Magnús Þorsteinn Magnússon