Rýmingu vegna skriðuhættu hefur verið aflétt í Kinn í Suður-ÞIngeyjarsýslu utan tveggja bæja í Útkinn. Íbúar í 9 húsum sem voru rýmd á Seyðisfirði fá ekki að fara heim fyrr en eftir helgi.
Bændur eru ósammála þeirri skoðun fyrrverandi yfirdýralæknis að skera þurfi allt fé í Húna- og Skagahólfi til að uppræta riðu á svæðinu. Unnsteinn Snorri Unnsteinsson verkefnastjóri hjá Bændasamtökunum segir að menn þurfi að meta umfang smitsins áður en gripið sé til aðgerða. Bjarni Rúnarsson ræddi við hann.
Offita barna er samfélagsleg áskorun og krefst markvissra aðgerða segir Ása Sjöfn Lórensdóttir, fagstjóri heilsuverndar skólabarna. BRynja Þorgeirsdóttir ræddi við hana og fjallað er um málið í fréttaþættinum Kveik.
ARnar Framkvæmdastjóri nokkurra skemmtistaða í miðbæ Reykjavíkur skilur ekki hvers vegna opnunartími veitinga- og skemmtistaða var ekki lengdur í nýjum sóttvarnareglum. Margar krár stefni í þrot.
Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar segir rakningarteymið ganga lengra á Akureyri en reglur um sóttkví segja til um. 80 eru í einangrun og nærri þúsund í sóttkví í bænum. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Karl.
Yfirvöld í Danmörku hafa gert yfir fimm hundruð bíla upptæka síðastliðna sex mánuði, þar sem ökumenn þeirra gerðust sekir um háskalegan akstur. Ásgeir Tómasson sagði frá.
--------
Það er Alþingis að kveða uppúr um niðurstöður kosninga og gildi kjörbréfa en það hefur ýmsa kosti, segir Hafsteinn Þór Hauksson dósent í lögum og stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Ákvörðun um kjörbréf í Norðvesturkjördæmi er ekki endilega eins augljós og margir vilja vera láta. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Margar viðvörunarbjöllur klingja vegna aukinnar hættu á skriðuföllum að mati Þorsteins Sæmundssonar jarðfræðings. Hann segir að það þurfi sárlega að mennta fleira fólk til að til að meta hættuna og auka rannsóknir og vöktun á fjallshlíðum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.