Spegillinn

Spegillinn 5.12.2018


Listen Later

Spegillinn 5.12.2018
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis telur eðlilegt að nefndin skoði sérstaklega ummæli Gunnars Braga Sveinssonar um meintan sendiherrakapal vegna misvísandi yfirlýsinga þeirra sem koma að málinu. Höskuldur Kári Schram ræddi við Helgu Völu Helgadóttur og Guðlaug Þór Þórðarson.
Varaformaður Viðreisnar skorar á alla karla á Alþingi að stöðva og hafna þeirri orðræðu sem sexmenningarnir viðhöfðu á Klaustri. Slík kvenfyrirlitning megi ekki líðast innan veggja Alþingis. Jóhanna vigdís Hjaltadóttir tók saman frá Alþingi ummæli Þorsteins Víglundssonar.
Hart var sótt að Theresu May, forsætisráðherra Bretlands í umræðum um Brexit á breska þinginu í dag. Stjórn hennar neyddist í dag til að birta lögfræðiálit um samninginn, eftir ávítur þingheims í gær.
Tekið er á kröfum um lagfæringu á stofnæðum á höfuðborgarsvæðinu og hugmyndum um veggjöld í endurskoðaðri samgönguáætlun sem kynnt verður á næstu dögum. Kristín Sigurðardóttir ræddi við Sigurð Inga Jóhannsson.
Forsvarsmenn Isavia vilja svör við því hvað tillögur starfshóps um innanlandsflug, sem settar voru fram í skýrslu samgönguráðherra, þýða fyrir Keflavíkurflugvöll. Jón Þór Kristjánsson talaði við Guðjón Helgason.
Fáir kostir virðast til stjórnarmyndunar í Svíþjóð tæpum þremur mánuðum eftir að nýtt þing var kjörið. Fréttaskýrendur segja margir að kostirnir séu minnihlutastjórn Jafnaðarmanna undir stjórn Stefans Löfvens eða nýjar kosningar. Bogi Ágústsson tók saman
Við höldum okkur í Svíþjóð því liðið sumar var eitt það þurrasta sem vitað er um í Svíþjóð. Uppskera á kornmeti hefur ekki verið minni í nær sextíu ár og þeir sem halda búpeninga kvíða margir vetrinum enda fóður lítil og brunnar víða þurrir. Kári Gylfason í Gautaborg sagði frá.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti ætlar að skila afrískum menningarminjum sem eru á frönskum söfnum. Vaxandi skilningur virðist á því að þjóðir eigi rétt á menningararfleifð sinni. Sigrún Davíðsdóttir tók saman
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners