Spegillinn

Spegillinn 5.desember 2022


Listen Later

Spegillinn 5. desember 2023
Ummsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Formaður Starfsgreinasambandsins segir að verkefni hans sé að koma launahækkunum til félagsmanna fljótt og það hafi tekist. Það sé fráleitt að segja að kjarasamningurinn sem undirritaður var um helgina veiki samningsstöðu annarra félaga.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, vinnumarkaðsráðherra, segist fagna því að samningar hafi tekist hjá Starfgreinasambandinu og Samtökum atvinnulífsins.
Rússar gerður eldflaugaárasir á Úkraínu í dag. Almenningur þurfti að leita sér skjóls. Í það minnsta tveir almennir borgarar létu lífið.
Maður sem vistaður var á vöggustofu í æsku segir að sanngirnisbætur verði skötulíki miðað við það sem nú er nái frumvarp um sanngirnisbætur fram að ganga.
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, María Heimisdóttir, hefur sagt upp störfum . Hún segist ekki geta borið ábyrgð á því að tryggja rekstrargrunn stofnunarinnar.
Pétur Krogh Ólafsson aðstoðarmaður borgarstjóra hefur verið ráðinn í nýtt starf viðskipta- og þróunarstjóra Veitna. Starfið var ekki auglýst.
Og Króatar eru komnir í 8 liða úrslit HM karla í fótbolta. Þeir sigruðu Japani í 16 liða úrslitum í dag.
Lengri umfjöllun:
Á laugardaginn var skrifað undir samning milli 17 félaga innan Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Samið er til ríflega árs og hækkanir eru frá um þrjátíu til fimmtíu þúsund króna á mánuði. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist stoltur af því að hafa náð að gera samning sem tekur beint við af samningnum sem rann út um mánaðamótin október-nóvember. Það sé einsdæmi og tryggi að félagar verði ekki af hækkunum svo mánuðum skiptir. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Vilhjálm.
Samþætting er lykilorð í drögum að nýrri fjögurra ára aðgerðaáætlun í þjónustu við eldra fólk sem stjórnvöld kynntu í dag - samþætting heilbrigðis og félagsþjónustu. Verkefnastjórn sem skipuð var af ráuneytum heilbrigðis- og félagsmála síðastliðið sumar sér um að koma áætluninni í framkvæmd á næstu árum. Verkefnisstjóri er Berglind Magnúsdóttir sérfræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu. Kristján Sigurjónsson talar við Berglindi.
Barnsfæðingum fækkar stöðugt í Suður-Kóreu. Samkvæmt nýjustu samantekt um fæðingatíðni í heiminum, frá því í síðasta mánuði, hefur þjóðin enn einu sinni slegið sitt eigið met. Hver suðurkóresk kona eignast að meðaltali 0,79 börn um ævina. Ásgeir Tómasson segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners