Forystumenn stjórnarandstöðuflokka á Alþingi vilja ekki lengur funda með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, vegna Klausturmálsins, og eru hættir að bjóða honum á reglulega samráðsfundi.
Talsverður bruni varð í bakhúsi við Vesturgötu í Reykjavík þegar eldur kom upp á fimmta tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.
Íslenska ríkið er skaðabótaskylt vegna þess að Fiskistofa úthlutaði Ísfélaginu og útgerðarfélaginu Hugin minni aflaheimildum í makríl á árunum 2011 til 2014 en skylt var samkvæmt lögum. Málið gæti snúist um milljarða bætur.
Niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn benda til þess að unglingar sofi of lítið og stundum jafnvel ekki neitt. Sérfræðingar óttast að afleiðingar þessa geti orðið mjög alvarlegar - þau jafnvel brotni niður fyrir þrítugt.
VR og Starfsgreinasambandið kalla samninganefndir sínar saman í byrjun næstu viku til að meta stöðuna í kjaraviðræðunum. Óþreyju er byrjað að gæta innan verkalýðshreyfingarinnar.
Vísindamenn telja að örplast finnist í hægðum annars hvers jarðarbúa. Þeir vilja rannsaka áhrif örplasts á heilsu fólks.
Bóas Valdórsson, sálfræðingur í Menntaskólanum við Hamrahlíð, óttast afleiðingar ónægs svefns ungmenna. Niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar sýna að unglingar sofa stundum ekki neitt og oftast sofa þeir of lítið. Rúna Sif Stefánsdóttir, doktorsnemi í íþrótta- og heilsufræði og ein rannsakenda segir að krakkar sofi ekki bara of lítið heldur einnig óreglulega. Hún óttast að þau brotni niður fyrir þrítugt. Bergljót Baldursdóttir tók saman.
VR og Starfsgreinasambandið vilja fá skýr svör frá atvinnurekendum um afstöðu þeirra til launakrafna sem lagðar hafa verið fram. Þó að þær hafi ekki verið ræddar formlega virðist himinn og haf vera á milli hugmynda félaganna og Samtaka atvinnulífsins um launahækkanir. Óþreyju er farið að gæta innan verkalýðshreyfingarinnar og hafa samninganefndir VR og Starfsgreinasambandsins verið kallaðar saman í byrjun næstu viku til að meta stöðuna í kjaraviðræðunum. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Sögur af ótímabæru andláti bókarinnar hafa verið verulega ýktar. Ófeigur Sigurðsson segir að skáldsagan sé að rísa upp á ný úr brunarústum póstmódernismans. En það eru ekki til nema sex tegundir skáldsagna. Allar falla þær innan sömu formúlanna. Pálmi Jónasson segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon