Þriðjungur stærstu fyrirtækja landsins hyggst fækka starfsfólki. Leita þarf aftur til Hrunsins til að finna jafnhátt hlutfall, segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
Formaður Eflingar vísar því á bug að kjarakröfur verkalýðsfélaganna séu ógn við hagkerfið. Seðlabankastjóri segir að miklar launahækkanir verði áfall fyrir efnahagslífið.
Matarinnkaupin eru mun dýrari í Reykjavík en í öðrum höfuðborgum Norðurlandanna. Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir að þetta komi ekki á óvart.
Settur hefur verið á laggirnar sex manna hópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að ræða með hvað hætti stjórnvöld geti liðkað fyrir kjarasamningum. Fyrsti fundurinn var í gær.
Síðustu fjögur ár hefur hiti á jörðinni mælst meiri en nokkru sinni, frá því mælingar hófust.
Dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík telur mikilvægt að ákvæði verði í stjórnarskánni um framsal valds til að liðka fyrir famkvæmd EES samningsins. Aldarfjórðungur er liðinn frá því að Ísland staðfesti samninginn Talsverð átök voru um hann á Alþingi þegar hann var samþykktur 1993. Arnar Páll Hauksson talar við Margréti Einarsdóttur dósent við Háskólann í Reykjavík.
Postulínvaskar, sturtubotnar, hurðir og parket sem er enn í plastinu. Það stóð til að fleygja þessu öllu en þökk sé nýrri efnismiðlun Góða hirðisins á Sævarhöfða í Reykjavík var það ekki gert. Dæmi eru um að viðskiptavinir hafi byggt litla skúra og nýtt nær eingöngu efnivið úr miðluninni. Starfsmenn ráða þeim sem vilja byggja íbúðarhúsnæði þó frá því að stóla alfarið á Góða hirðinn. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Guðmund Tryggva Ólafsson og Hafstein Hallsson.