Ekkert verður úr lækkun veiðigjalda að sinni, því forsætisráðherra leggur til við formenn annarra flokka að þau verði óbreytt fram að áramótum. Það sé gert til að skapa sátt um þinghaldið.
Mikinn reyk leggur frá þaki 115 ára gamals hótels í auðmannahverfi í Lundúnum. Á annað hundrað slökkviliðsmenn berjast við eldinn.
Íslands forni fjandi, hafísinn, sást óvenju nálægt landi í morgun norður af Kögri. Einnig virðist vera ísdreif um átta sjómílur norður af Hælavíkurbjargi.
Viðræður um myndun nýs meirihluta í Reykja virðast ganga vel að loknum fimmta viðræðudegi. Stefnt er að því að ljúka málefnavinnu áður en ákveðið verður hver sest í borgarstjórastólinn.
Efnt var til málþings í dag sem bar yfirskriftina: Ofbeldi sem kerfið lítur fram hjá og ósýnileiki gerenda. Þar sögðu nokkrir þolendur sögu sína. Fjallað er um málþingið síðar í Speglinum. Arnar Páll Hauksson talar við Jenný Kristínu Valberg og Sigrúnu Jóhannsdóttur.
„Manni finnst í fljótu bragði að dómurinn sé háður sömu annmörkum og málsmeðferð stjórnvalda og feli jafnvel í sér brot á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins,“ þetta segir annar lögmanna Freyju Haraldsdóttur. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Sigrúnu Ingibjörgu Gísladóttur lögmann Freyju.
Umsjón. Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður. Markús Hjaltason.