Forsvarsmenn bandaríska félagsins ALC hafa lagt fram nýja aðfarabeiðni og krefjast þess að félagið fái Airbus-þotuna sem Isavia kyrrsetti eftir gjaldþrot WOW air. Isavia hafnaði tilboði ALC í dag. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá
Yfirkjörstjórn í Tyrklandi hefur ógilt úrslit borgarstjórakosninga í Istanbúl og boðar til nýrra kosninga. Erdogan forseti tók því afar illa að stjórnarandstæðingur hafði betur gegn frambjóðanda hans. Ásgeir Tómasson tók saman
Sparisjóður Strandamanna skoðar nú hvort hægt er að loka á viðskipti við smálánafyrirtæki. Sparisjóðsstjórinn segir málið í vinnslu með fjármálaeftirlitinu.
Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir að stjórnvöld verði að koma Landsrétti til aðstoðar svo réttarkerfið í landinu sé starfhæft. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmálaráðherra hefur enn ekki séð tillögu sem myndi laga stöðuna sem uppi er vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu.
Prestar hvetja stjórnvöld til að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhvefismála þjóðkirkjunnar segir brýnt að endurheimta votlendi á kirkjujörðum og efla skógrækt til muna. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann.
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps segir að lítil samfélög geti ekki fríað sig ábyrgð á umhverfismálum og sjálfbærni. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna verða lögð til grundvallar allri stefnumótun sveitarfélagsins. , Jón Þór Kristjánsson ræddi við hana.
Náttúrunni hnignar hraðar en nokkur sinni og þörf mannsins fyrir orku og mat eru það sem helst knýr afturförina. Milljón tegundir lífvera eru í útrýmingarhættu. Fjallað verður um nyja skýrslur um vá sem steðjar að fjölbreytileika náttúrunnar í Speglinum. Rætt við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar.
Fyrir helgi var kosið í 248 af 408 bæja- og sveitastjórnum í Bretlandi. Íhaldsflokkurinn tapaði illa, Verkamannaflokknum gekk heldur ekki sem best. Theresa May forsætisráðherra telur úrslitin til merkis um að kjósendur vilji nú klára útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Ýmsir flokksmenn hennar skrifa úrslitin á hennar reikning, flokkurinn þurfi nýjan leiðtoga. Staðreyndin er þó sú að sigurvegarar kosninganna eru andsnúnir Brexit. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon