Hætta á hruni veldur því að rannsókn lögreglu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ í gær er skammt á veg komin.
Þrítug kona og þrjár dætur hennar standa uppi slyppar og snauðar eftir brunann í í gær. Þar var það sem eftir var af búslóð þeirra. Þær þurftu að henda hinum hlutanum þegar þær fluttu út úr leiguíbúð fyrir tveimur vikum vegna myglu.
Félagsmálaráðherra ætlar að kynna innan tveggja vikna bráðaaðgerðir til að bregðast við vanda ungra fíkla.
Fimmtán þingmenn vilja að Alþingi lýsi því yfir að það hafi verið rangt að leggja til málshöfðun gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum 2010 og að þeir verði beðnir afsökunar.
Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er stefnt að því að innheimta komugjalda hefjist 2020 og að þau skili 2,5 milljörðum í ríkissjóð.
Móðir sem missti dóttur sína af slysförum, segir að fólk, sem missir nákominn skyndilega, oft gleymast. Viktoría Hermannsdóttir talaði við Hrönn Ásgeirsdóttur
Einræði í Ungverjalandi. Pálmi Jónasson fjallar um ástandið í Ungverjalandi og þingkosningar sem verða þar um helgina.
Vilja ekki komugjöld yfir vetrartímann. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.