Spegillinn

Spegillinn 6. september 2021


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Útlit er fyrir að Skaftárhlaup nú verði jafnstórt eða stærra en hlaupið 2015, sem er með stærri Skaftárhlaupum. Rennsli við Sveinsstind er komið yfir 1000 rúmmetra á sekúndu og nær sennilega hámarki á morgun. Rennslið getur þá farið yfir 2000 rúmmetra á sekúndu.
Sóttvarnalæknir segir að rúmlega þúsund smit hafi verið rekin til hópsmitsins á Bankastræti club í sumar. Hann vill fara varlega í afléttingar.
Lagt er til að Akureyri verði skilgreind sem svæðisborg með skilgreinda ábyrgð og skyldur í nýrri skýrslu starfshóps sem samgönguráðherra skipaði.
Mannréttindasamtök í Þýskalandi saka nokkur fyrirtæki þar í landi um að nýta sér ódýrt vinnuafl Uígúra.
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins greindi frá því í dag að fjórir bandarískir ríkisborgarar hefðu komist landleiðina frá Afganistan.
Umfang mála sem rata á borð Persónuverndar hefur rúmlega fjórfaldast á tæpum tuttugu árum. Málin sem stofnunin á að fjalla um eru allt frá því að fjalla um hvort að glærir plastpokar tengist vinnslu persónuupplýsinga og að flóknum vísindarannsóknum og öryggi einstaklinga í því samhengi.
Lengri umfjöllun:
Þorsteinn Þorsteinsson jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands segir frá stöðu í Skaftárhlaupi og flókinni landafræði Skaftár. Útlit er fyrri að hlaupið verði jafnst?fort eða stærra en hlaupið 2015 sem er með stærri hlaupum.
Ríkisstjórn hægri flokkanna í Noregi þarf enn að bjarga 15 til 20 þingsætum til að halda velli. Allir fjórir stuðningsflokkar stjórnarinnar tapa fylgi og mestu munar að ungt fólk í stærstu bæjum hallast að róttækum flokkum lengst til vinstri. Kosningabaráttan er á lokaspretti en kosið verður 13. september. Gísli Kristjánsson í Ósló segir frá.
Réttindi og skyldur starfsmanna og vinnuveitenda vegna fjarvinnu verða mikilvægur liður í næstu kjarasamningum að mati sérfræðings í kjara- og réttindamálum hjá Bandalagi háskólamanna. Vinnuveitandi ber ábyrgð á heilbrigði og öryggi starfsmanns í fjarvinnu og hefur rétt til að taka út starfsstöðina á heimili hans. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Karen Ósk Pétursdóttur sérfræðing í kjara-og réttindamálum hjá BHM
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners