Spegillinn 6.nóvember 2020
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Joe Biden er kominn með nokkur þúsund atkvæða forskot á Donald Trump í Pennsylvaníu. Með sigri þar tryggir hann sér embætti Bandaríkjaforseta.
Taka verður sóttvarnir mjög alvarlega næstu þrjár vikur segir forsvarsmaður spálíkans háskólans, ekki sé hægt að fagna sigri þótt mörg jákvæð teikn séu á lofti.
Logi Einarsson hlaut yfir 96 prósent atkvæða í formannskjöri Samfylkingarinnar. Kosningu lauk nú síðdegis.
Aldrei hafa fleiri Covid-smit mælst á einum sólarhring í Svíþjóð eins og þeim síðasta - eða hátt í 4700. Búist er við hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni.
Iðnaðarráðherra segir að mygla í húsum sé stórt og alvarlegt vandamál. Öflugar rannsóknir, prófanir og eftirlit með byggingingarefnum skili árangri í baráttunni við myglu.
Lengri umfjöllun:
Forsetakosningrnar í Bandaríkjunum. Joe Biden, forsetaefni Demókrata, hefur aukið forskot sitt á Donald Trump forseta í Pennsylvaníu eftir því sem liðið hefur á daginn. Hann hefur einnig forystuna í Arizona, Nevada og Georgíu. Í nokkrum þeirra er þó svo mjótt á munum að fjölmiðlar vestanhafs telja ótímabært að lýsa hann sigurvegara kosninganna. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðiprófessor metur söðuna, fyrsta verk Bidens ef forsetaskipti verða, framtið Trumps o.fl. Kristján Sigurjónsson talar við hana.
Nær fjögur þúsund og sjö hundruð (4.697) Covid-smit hafa greinst í Svíþjóð síðasta sólarhringinn. Það mesta frá upphafi faraldursins. Heilbrigðisstarfsfólk varar við að holskefla sé við það að skella á sjúkrahúsum landsins, sem enn hafi ekki náð sér eftir álag og hálfgert stríðsástand í vor. Kallað er eftir hertum aðgerðum - jafnvel útgöngubanni - og það strax. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá.
Norska ríkið vill fá jafnvirði 220 milljarða íslenskra króna í bætur fyrir freigátuna Helge Ingstad, sem fórst með slysalegum hætti inni á firði í Noregi fyrir tveimur árum. Það er kostnaðurinn við að missa skip nokkru stærra en varðskipið Þór. Gísli Kristjánsson segir frá.