Spegillinn

Spegillinn 7. apríl 2022


Listen Later

Spegillinn 7. apríl 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Rússland var í dag rekið úr mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna vegna innrásarinnar í Úkraínu. Slíkt hefur gerst aðeins einu sinni áður.
Fjármálaráðherra hefur óskað eftir því að ríkisendurskoðandi skoði og geri úttekt á ferlinu við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Þrjú félög sem tengjast málum sem héraðssaksóknari rannsakar eru meðal þeirra sem keyptu hlutabréf með afslætti í lokuðu útboði á tuttugu og tveggja og hálfs prósents hlut í Íslandsbanka.
Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, ætla að hittast á fundi í fyrramálið, en Sigurður Ingi baðst á dögunum afsökunar á orðum sem hann viðhafði um Vigdísi.
Skæð fuglaflensa hefur fundist í haferni hjér á landi og er það í fyrsta sinn sem slík veira finnst hér.
Tíu lögreglumenn og sérfræðingar á vegum héaðssaksóknara eru við skýrslutökur og húsleit vegna Innheimtustofnunar sveitarfélaga á Ísafirði.
Fjórir hafa verið sakfelldir fyrir hrottalega frelsissviptingu á manni á Akureyri í september 2017. Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í málinu í gær.
Ísland lagði Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta í dag 5-0.
Lengri umfjöllun:
Salan á Íslandsbanka hefur vakið nokkuð hörð viðbrögð, bæði úti í samfélaginu, á Alþingi og víðar. Listi yfir þá sem keyptu hlut í bankanum var gerður opinber í gær, þrátt fyrir að Bankasýsla ríkisins, sem annaðist söluna, hafi talið að slíkan lista mætti ekki birta. Bjarni Rúnarsson ræddi við Lárus Blöndal stjórnarformann bankasýslunnar í dag.
Enn einu sinni standa öll spjót á heilbrigðisyfirvöldum og yfirstjórn Landsspítalns að leysa vanda bráðmóttöku spítalans. Hjúkrunarfræðingar á móttökunni krefjast þess að stjórnvöld og Landspítali staðfesti skriflega að ábyrgðin liggi þar en ekki hjá hjúkrunarfræðingum, komi upp alvarleg atvik sem rekja megi beint eða óbeint til álags á Bráðamótttökunni. Ástandið á Bráðamóttökunni sé það versta sem komið hefur upp í rúman áratug. Ólöf Rún Skúladóttir fréttamaður ræddi í dag við Runólf Pálsson forstjóra Landspítlans um kröfur hjúkrunarfræðinga. Runólfur tók við forstjórastarfinu fyrir rúmum mánuði.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners