Spegillinn

Spegillinn 7. desember 2021


Listen Later

Spegillinn 7. desember 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Nefnd sem kannað hefur viðbrögð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengdust landsliðsmönnum gagnrýnir tvo fyrrverandi formenn sambandsins en telur viðbrögð annarra stjórnar- og starfsmanna ekki bera einkenni þöggunar.
Aðkoma stjórnvalda í húsnæðismálum og að halda verðbólgu í skefjum eru brýnustu verkefnin í aðdraganda kjaraviðræðna á næsta ári. Þetta segir Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands.
Starfshópur sem innanríkisráðherra hefur skipað á að greina eðli starfsemi vistheimilisins á Hjalteyri og hvernig eftirliti var háttað.
Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar segir að menn verði að vera samstíga um framhaldið í raforkumálum með ólíka hagsmuni að leiðarljósi, það er náttúruverndina og þeirra sem þurfi á orkunni að halda. Það sé ekki hægt að eyða fleiri árum eða kjörtímabilum í að rífast um hlutina.
Þingmenn Grænlendinga á danska þinginu hafa lýst ánægju með að gert er ráð fyrir auknum útgjöldum til félagsmála á Grænlandi í samkomulagi um fjárlög Danmerkur.
Hlutur íslenskra jólatrjáa eykst jafnt og þétt í jólaversluninni
Lengri umfjöllun.
Tveir fyrrverandi formenn Knattspyrnusambands Íslands eru gagnrýndir í skýrslu sérstakrar nefndar um viðbrögð og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengdust landsliðsmönnum. Ekki er talið að aðstæður innan sambandsins hamli þátttöku kvenna í starfseminni en hvatt til þess að leitað verði leiða til að leiðrétta kynjahallann sem á henni er. Nefndin var skipuð af Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands í haust að beiðni KSÍ og kynnti hún niðurstöður sínar í dag. Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari og formaður nefndarinnar sagði að hún hefði fengið óheftan aðgang að skjalasafni sambandsins, skoðað hundruð skjala og tölvupósta og rætt við rúmlega 50 manns sem hafa starfað eða setið í stjórn KSÍ og tugi annarra sem tengjast atburðunum sem skoðaðir voru. Enginn hefði skorast undan að tala við nefndina eða veita henni gögn. Hann þakkaði sérstaklega þeim sem hefðu deilt með nefndinni frásögnum af kynferðislegu eða kynbundu ofbeldi, það hefði ekki verið þeim auðvelt og krafist hugrekkis. Kynferðisofbeldi lægi oft í þagnargildi því fólk treysti sér ekki til að segja frá af ótta við viðbrögðin. Flutt brot af kynningfundi nefndarinnar þar sem heyrist í Kjartani, Rán Ingvarsdóttur og Hafdísi Kristjánsdóttur nefndarmönnum. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Aðkoma stjórnvalda í húsnæðismálum og að halda verðbólgu í skefjum eru b
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners