Lögregla rannsakar umfangsmikið fíkniefnamál. Kona og karl eru í gæsluvarðhaldi grunuð um innflutning á þremur kílóum af kókaíni og peningaþvætti. Reykjavíkurflugvöllur var meðal annars notaður til að koma efnunum hingað.
Ástandið við Landspítalann er ótækt, segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Sjúklingar þurfi jafnvel að greiða tugi þúsunda fyrir bílastæði við sjúkrahúsið sem séu líka mjög af skornum skammti og aðkoman erfið.
Gera á málsmeðferð nálgunarbanns einfaldari og skilvirkari samkvæmt frumvarpi um breytingar á lögum þess efnis. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur samþykkt frumvarpið
Til greina kemur að ráðast í enn frekari sértækar aðgerðir til að bregðast við slæmri byggðaþróun í Grímsey og Hrísey.
Í skýrslu um skattkerfisbreytingar sem Efling lét gera er varpað fram hugmyndum um sérstakt skattþrep á ofurtekjur sem nemi fjórföldum meðaltekjum launamanna.
Eygló Harðardóttir, fyrrverandi húsnæðismálaráðherra, ákvað að hlusta ekki á þá sem sögðu henni að það væri liðin tíð að byggja sjálfur á Íslandi. Torfþakið á burstabæ hennar verður klárað í sumar. Hún þurfti að færa fórnir, bjó í hjólhýsi um tíma og var án sturtu í fimm mánuði. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Eygló Harðardóttur.
Í skattatillögum sem Efling lét vinna er lagt til að tekið verði upp sérstakt ofurskattþrep sem legðist á til dæmis fjórfaldar meðaltekjur launamanna. Annar höfundur tillagnanna segir að þessari tillögu sé varpað fram til skoðunar. Þar sem slíkur skattur hafi verið ræddur hafi verið hugmyndir um 70 til 80% skatt. Arnar Páll talar við Indirða H. Þorláksson og Stefán Ólafsson.