Spegillinn

Spegillinn 7. janúar 2018


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Flugumferð frá Heathrow flugvelli í Lundúnum hefur verið stöðvuð vegna gruns um að dróni hafi sést á lofti í nágrenni vallarins. Á Twitter kemur fram að flugvallaryfirvöld vinni náið með Lundúnalögreglunni til að koma í veg fyrir að öryggi sé ógnað
Öll vinna við stofnmælingar og veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar er í uppnámi ef ríflega 230 milljóna niðurskurður á rekstri stofnunarinnar verður að veruleika. Forstjóri Hafró og útilokar ekki að segja þurfi upp fólki.
Mikilvægast er að koma greiðslu á örorkulífeyri þeirra sem búið hafa í öðru EES í rétt horf á þessu ári, en fara síðan í að leiðrétta skekkju fyrri ára. Þetta segir félagsmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur fallist á tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Víkurgarðs, sem nú er Fógetatorg í miðbæ Reykjavíkur. Friðlýsingin nær aðeins til Víkurgarðs eins og hann er skilgreindur í núgildandi lóðauppdrætti af svæðinu.
Mikill sóðaskapur er við tuttugu yfirgefna sumarbústaði við Elliðavatn. Svo virðist sem einhverjir hafi farið þar um og skemmt allt sem hægt er að skemma. Íbúar í nágrenninu hafa verulegar áhyggjur af ástandinu. Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa ítrekað reynt að fá leyfi hjá landeiganda til að hreinsasvæðið.
Á annað hundrað þúsund kennarar í Simbabve leggja niður vinnu frá og með morgundeginum. Þeir segja að laun þeirra hafi gufað upp að undanförnu.
Umhverfisstofnun hefur lokað fyrir umferð gangandi fólks um Fjarðárgljúfur um óakveðinn tíma. Gögnustígur er eitt forarsvað vegna bleytutíðar og mikils ágangs.
Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði í handbolta er meiddur og verður ekki með á Heimsmeistaramótinu sem hefst á föstudag í Þýskalandi.
Lengri Umfjallanir:
Reikniaðferðir Tryggingastofnunar til að meta búsetuhlutfalla öryrkja hafa verið notaðar í aldarfjórðung. Vegna reglna um fyrningar verður ekki endurgreitt nema fjögur ár aftur í tímann en það sættir Öryrkjabandalagið sig ekki við. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Landlæknisembættið gaf í dag út skýrslu, eða hlutaúttekt, vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landsspítalans. Óhætt er að segja að niðurstöður úttektarinnar séu býsna afdráttarlausar og landlæknisembættið kemur með ábendingar til bæði Landspítala og Heilbrigðisráðuneytis um aðgerðir sem sumar hverjar þola enga bið. Kristján Sigurjónsson ræðir við Ölmu D. Möller landlækni í beinni útsendingu.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners