Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Hafrannsóknastofnun þarf að hagræða í rekstri um 234 milljónir króna á þessu ári. Forstjórinn segir það mjög erfitt og útilokar ekki uppsagnir starfsfólks.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ætlar ekki að verða við kröfu Sjálfstæðismanna um að víkja úr þriggja manna hópi sem á að vinna tillögur úr skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um braggamálið.
Barn í móðurkviði hefur ekki sjálfstæðan tryggingarétt og því fellur fæðingarþjónusta ótryggðrar móður ekki undir íslenskar sjúkratryggingar. Þetta segir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Enn bólar ekkert á úrslitum forsetakosninganna í Austur-Kongó fyrir rúmri viku. Kjörstjórnin segist ekki hafa hugmynd um hvenær talningu ljúki.
Tvö skip eru nú við loðnurannsóknir norður af landinu og það þriðja er á leiðinni.
Dómari ákvað að loka þinghaldi fyrirvaralaust í Skáksambandsmálinu þegar aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hádegi í dag.
Ferðum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fjölgaði minna árið 2018 en undanfarin ár. Fjölgunin nam aðeins 5,5 prósentum milli ára sem er talsvert minni fjölgun en verið hefur undanfarin ár.
Lengri umfjallanir:
Tryggingarstofnun stefnir að því að niðurstöður liggi fyrir í lok janúar um endurgreiðslur til öryrkja sem hafa ekki fengið fullar bætur vegna skerðingar á búsetuhlutfalli. Stofnunin hefur unnið að lausn málsins í samvinnu við velferðarráðuneytið allt fá því í júní í fyrra þegar umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að reiknireglur TR ættu sér ekki viðhlítandi stoð í lögum. Arnar Páll Hauksson sagði frá.
Hundrað vörubílum var stefnt á flugvöll í Suður-Englandi í morgun og þeir látnir keyra út í morgunumferðina sem liður í undirbúningi þess ef nú Bretar yfirgefa Evrópusambandið í lok mars án samninga. Nú stefnir aftur í atkvæðagreiðslu um útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Þingið greiðir örugglega atkvæði, sagði Theresa May forsætisráðherra í viðtali við breska ríkissjónvarpið í gær. Sigrún Davíðsdóttir segir ný tíðindi af Brexit.
Þarftu að láta flísaleggja baðherbergi, gera við bíl eða sóla skó. Það á alltaf að borga sig að gera við hluti og ef útlit er fyrir að viðgerð sé óhagkvæm á fagmaður að upplýsa neytandann um það. Ákvæði um þetta er að finna í þjónustukaupalögum. Lögin eru um margt matskennd og óljóst hvað nákvæmlega felst í óhagkvæmri viðgerð. Formaður Neytendasamtakanna segir að sum ákvæði laganna mættu vera skýrari og Framkvæmdastjóri FÍB segir slæmt að úrskurðir úrskurðarnefndar um þjónustukaup hafi ekki la