Spegillinn

Spegillinn 7. maí 2019


Listen Later

Atkvæðagreiðslu á Alþingi um frumvarp um þungunarrof var í dag frestað fram yfir helgi. Lagt hefur verið til að breyta fjórðu grein þess og leyfa þungunarrof til loka 20 viku en ekki 22. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Pál Magnússon, (D) formann allsherjar og menntamálanefndar. Brot úr ræðum Óla Björns Kárasonar (D) og Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur (V).
Yfir 150 þúsund Sýrlendingar hafa flúið heimili sín í norðvesturhluta Sýrlands síðustu daga vegna árása Rússa og sýrlenska stjórnarhersins. Hundruð hafa fallið eða særst. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Dæmi eru um að smálánaskuldarar hafi verið teknir af vanskilaskrá vegna þess að þeir mótmæltu því að krafan væri lögmæt, segir förstöðumaður lögfræðisviðs Creditinfo. Kristín Sigurðardóttir talaði við Sigríði Laufeyju Jónsdóttur, forstöðumann þjónustu- og lögfræðisviðs Creditinfo.
Malbikunarframkvæmdir sumarsins hófust í Reykjavík í dag. Valgeir Örn Ragnarsson fréttamaður hitti Ólaf Sigurmundsson yfirverkstjóra hja Malbikunarstöðinni Höfða í Bláskógum í dag.
Ein óyggjandi vísbending þess að sumarið er komið er áberandi söngur svartþrastar í mörgum húsagörðum landsins. Í garði í Reykjavík náðist á upptöku þegar svartþröstur hóf að syngja með partítónlist úr næsta húsi.
--------
Jón Kristinsson, umhverfisarkitekt og frumkvöðull á sviði sjálfbærrar byggingarlistar, leggur til að Markarfljóti verði veitt inn í Landeyjahöfn til að gera hana sjálfhreinsandi. Unnið er að endurbótum á höfninni sem eiga að gera það kleift að dæla sandi úr henni úr landi. Fjallað verður um lausn á vanda Landeyjahafnar síðar í Speglinum.
Málefni hafsins, loftslagsmál, grænar orkulausnir og fólkið og samfélög á norðurslóðum verða meginviðfangsefni Norðurskautsráðsins undir formennsku Íslands næstu tvö árin. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði sérstaka áherslu á sjálfbærni í Rovaniemi morgun þegar Ísland tók við formennskunni. Í fyrsta skipti í nærri aldarfjórðungs sögu ráðsins var ekki sameiginleg yfirlýsing eftir fund þess. Timo Soini utanríkisráðherra Finnlands, fráfarandi formaður vildi ekki álasa neinum fyrir það en í eigin yfirlýsingu væri rætt um loftslagsbreytingar. Mike Pompeo sagði að Trump stjórninni væri annt um vernd náttúrunnar en traust yrði að ríkja milli þjóða.
Fyrir tíu árum markaði skýrsla og tillögur Thorvalds Stoltenbergs, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, um norræna samvinnu tímamót. Utanríkismálastofnanir Norðurlandanna kynntu fyrir helgi úttekt á Stoltenberg-skýrslunni og þýðingu hennar.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners