Alþjóðleg samtök, sem berjast fyrir málstað Kúrda, birtu í dag myndband af Hauki Hilmarssyni, sem sagður er hafa fallið í Sýrlandi.
Samgönguráðherra segir að 200 milljarða viðbótarfjárveitingu þurfi til umbóta í vegamálum. Víða séu vegir ónýtir vegna mikillar umferðar, vetrarhörku og skorts á viðhaldi.
Orkustofnun hefur afturkallað leyfi Eykons Energy til olíuleitar á Drekasvæðinu. Stofnunin telur að félagið hafi hvorki tæknilega né fjárhagslega getu til takast á við skilmála leyfisins.
Taugagas varð til þess að rússneskur njósnari og dóttir hans misstu meðvitund í verslanamiðstöð í Bretlandi um helgina.
Jarðskjálfti í verkalýðshreyfingunni. Arnar Páll Hauksson talar við Sumarliða R. Ísleifsson.
Velferðarhagkerfi Costanza. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Robert Costanza og Stefán Gíslason.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Grétar Ævarsson.