Spegillinn

Spegillinn 7. mars 2022


Listen Later

Spegillinn 7.mars 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Vesturlönd skoða nú að hætta að kaupa rússneska olíu og gas. Forsætisráðherra Bretlands segir þörf á að gera það í skrefum með samstilltu átaki en Þýskalandskanslari telur það ómögulegt.
Ekki er þörf á herliði með fasta setu hér á landi miðað við núverandi stöðu heimsmála segir sérfræðingur í varnarmálum.
Heilbrigðisráðherra segir virðingarvert hjá Krabbameinsfélaginu að bjóða nærri hálfs milljarðs króna styrk til uppbyggingar göngudeildar á Landspítala. Boðið verði þó að skoða í samhengi við aðra þætti uppbyggingar spítalans.
Tólf sjúklingar liggja nú á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid 19 og hafa aldrei verið fleiri.
Enn fækkar þeim sem skráðir eru í íslensku þjóðkirkjuna. Tæp átta prósent landsmanna kjósa að standa utan trú- og lífsskoðunarfélaga.
Félags- og vinnumálaráðherra hefur skipað sérstakt aðgerðateymi sem ætlað er að skipuleggja móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Gylfi Þór Þorsteinsson fer fyrir hópnum. Hann segir enn óljóst hversu margir eigi eftir að leita hingað til lands.
Hlutabréfaverð allra fyrirtækja í Kauphöllinni nema eins lækkaði í dag. Mest lækkaði gengi í Icelandair um tæp níu prósent.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í dag að taka fyrir mál Bills Cosby. Leikarinn var leystur úr haldi í fyrra eftir að áfrýjunardómstóll ógilti fangelsisdóm yfir honum.
Alþjóðahandknattleikssambandið hefur bannað öllum rússneskum liðum og dómurum að taka þátt í viðburðum á vegum sambandsins.
Fjöruverðlaunin voru afhent í dag.
Lengri umfjöllun:
Yfir milljón Úkraínumanna eru nú landflótta og óttast er að jafnvel nokkrar milljónir í viðbót flýji land á næstu vikum. Tólf dagar eru nú liðnir síðan rússnesk stjórnvöld sendu her sinn inn í landið. Í Speglinum er rætt við Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í varnarmálum um ástand mála í Úkraínu. Hann veltir líka fyrir sér hvort stríðsátökin í Úkrínau breyti hernaðrlegri stöðu Íslands.Kristján Sigurjónsson talar við hann.
Efnasúpan allt í kringum okkur er fjölbreyttari og hefur meiri áhrif á okkur en við gerum okkur endilega grein fyrir. Í Speglinum höldum við áfram umfjöllun Kveiks um hormónaraskandi efni og ræðum um opinbert eftirlit með efnainnflutningi. Bjarni Rúnarsson talar við Ísak Sigurjón Bragason, teymisstjóra efnamála hjá Umhverfisstofnun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

475 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners