Spegillinn

Spegillinn 7.apríl 2021


Listen Later

Spegillinn 7.apríl 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson
Landsréttur hefur vísað frá kæru sóttvarnalæknis og niðurstaða héraðsdóms stendur, um að það að skikka þá í farsóttarhús sem hér eiga heimili og geta verið í heimasóttkví hafi gengið lengra en lög heimila. Sóttvarnalæknir vinnur að nýju minnisblaði um aðgerðir á landmærum.
Niðurstaða Evrópsku lyfjastofnunarinnar, um að blóðtappar séu afar sjaldgæf aukaverkun bólusetningar með bóluefni AstraZeneca, hefur tæplega áhrif á notkun bóluefnisins hér á landi, segir forstjóri Lyfjastofnunar.
Fimm kórónuveirusmit sem greindust utan sóttkvíar í gær má rekja til hópsmits í Mýrdalshreppi. Þar eru nú sex í einangrun.
Stjórnvöld ríkja heims ættu að hækka skatta á efnafólk til þess að greiða þann kostnað sem fylgir COVID-19 faraldrinum, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þau ættu jafnframt að aðstoða fátækari ríki við kaup á bóluefni.
Fiskistofa fær auknar heimildir til að afla upplýsinga um aflahlutdeild og eignarhald útgerða í nýju frumvarpi. Þar er brugðist við svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit stofnunarinnar.
Ótti landsmanna við að smitast af COVID-19 hefur aukist að undanförnu, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Þeim fjölgar sem versla frekar inn á netinu og kaupa umframbirgðir.
Lengri umfjöllun:
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í fyrradag að ríkið getur ekki skikkað fólk sem a lögheimili hér á landi til að fara í sóttkví í sóttvarnarhúsi, ef það getur tekið hana út heima hjá sér. Héraðsdómur mat það sem svo að um ólöglega frelsisviptingu væri að ræða. Mat sóttvarnarlæknis og heilbrigðisraðherra var að aðgerðin væri lögleg og gengi ekki lengra en nauðsynlegt er til að vernda lýðheilsu. Ríkið áfrýjaði úrskuðinum til Landsréttar og rétt fyrir fréttir kom fram að Landsréttur hefði vísað málinu frá á þeim grundvelli að fólkið sem kærði sóttkvína væri nú laust úr henni. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar og formaður Velferðarnefndar Alþingis og Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálftæðisflokks og nefndarmaður í Velferðarnefnd ræddu þessa niðurstöðu og fleira sem tengist Covid faraldrinum, sóttvörnum og hversu langt skuli ganga í þeim efnum í beinni útsendingu við Kristján Sigurjónsson.
Nýlega kom út ritið ritið Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers, 24 frjálslyndir íhaldshugsuðir, eftir Hannes H. Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hugveitan New Direction í Brüssel gefur ritið út. Bogi Ágústsson ræðir við Hannes um bókina.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners