Spegillinn

Spegillinn 7.janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 7. janúar 2022
Umsjón: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson.
Heilbrigðisráðherra hefur slakað á reglum um sóttkví þríbólusettra. Þríbólusettir sem eru útsettir fyrir smiti mega nú sækja vinnu eða skóla en mega ekki sækja mannamót, heilbrigðisstofnanir eða umgangast viðkvæma og þurfa áfram að bera grímu.
Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Geirfinnsmálinu, segir að ef endurupptöku á máli hennar verði hafnað þá sé málinu lokið. Þá geti hún ekki leitað réttar síns annars staðar.
Mál eins og það sem varð til þess að fimm háttsettir menn í atvinnulífinu stigu til hliðar í gær finnast víðar í samfélaginu. Fólk í valdastöðum þarf að umgangast samfélagsmiðla af nærgætni. Þetta segir prófessor í heimspeki.
Jarðskjálftahrinunni við Fagradalsfjall er lokið og fluglitakóða verið breytt í gulan. Náttúruvársérfræðingar telja kvikuna undir fjallinu vera að storkna og líkur á eldgosi fari dvínandi.
Talibanar í Afganistan biðja þjóðir heims um neyðaraðstoð. Þeir segja örbirgð blasa við milljónum landsmanna.
Lengri umfjöllun:
Fimm áberandi menn úr viðskiptalífinu á Íslandi stigu til hliðar í gær í kjölfar ásakana um kynferðisbrot. Málið hefur verið til umræðu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, eftir að Vítalía Lazareva (Lasareva) greindi frá því í hlaðvarpinu Eigin konur hvernig mennirnir hefðu farið yfir mörk hennar í heitum potti í sumarbústaðarferð í desember 2020 og einnig í golfferð á síðasta ári. Mennirnir fimm voru stjórnarmenn í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins og áberandi í viðskiptalífinu og fjölmiðlum. Orðrómur hafði verið á kreiki um brotin um nokkra hríð og stjórnir fyrirtækja sem sumir mannanna störfuðu hjá höfðu vitneskju um málið án þess að aðhafast, fyrr en í gær.
Raforkuverð er nú í hæstu hæðum í Svíþjóð og hefur aldrei verið jafn hátt. Nýr iðnaður, orkuskipti og ytri aðstæður leiða að óbreyttu til enn hærra raforkuverðs á næstu árum. Og því er vaxandi þrýstingur á að ný kjarnorkuver verði byggð í landinu.
Almenn þátttaka í bólusetningum hefur verið mjög góð á Íslandi og stór hluti af ungbarnavernd meðfram mælingum og þroskamati er að láta bólusetja börn. Við þriggja mánaða aldur eru þau bólusett við kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, haemofilus influenzu; mænusótt og pneumókokkum og fyrsta og hálfa árið fylgja sex sprautur til viðbótar. Þar sem við bætast bólusetningar við mislingum, hettusótt, rauðum hundum og hlaupabólu. Við fjögurra ára aldur er endurbólusett við kíghósta, barnaveiki og stífkrampa. Í uppgjöri Landlæknis á bólusetningum fyrir árið 2020 var þáttta
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners