Spegillinn 7.júní 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Um tvö þúsund iðnaðarmenn vantar til starfa í byggingariðnaði hér á landi segir formaður Samiðnar. á sama tíma hefur 700 nemendum verið vísað frá iðnnámi í Tækniskólanum.
Apabóla hefur ekki greinst hér á landi en aðeins er tímaspursmál hvenær það gerist segir sóttvarnalæknir. Gengið hefur verið frá kaupum á nokkrum tugum skammta af bóluefni.
Nýr meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur var gagnrýndur á fyrsta fundi nýkjörinnar borgarstjórnar fyrir að leggja fram með hálftíma fyrirvara tilfærslur og breytingar á nefndum og ráðum borgarinnar.
Alþingi samþykkti síðdegis tillögu utanríkisráðherra um að staðfesta viðbótarsamninga við Nató um aðild Finnlands og Svíþjóðar með 44 atkvæðum.
Óli Björn Kárason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir að ef takist að semja um afgreiðslu frumvarps dómsmálaráðherra um útlendinga þá verði tiltölulega auðvelt að semja um afgreiðslu annarra mála. Markmiðið sé að reyna að klára þinghaldið með sóma fyrir þjóðhátíðardaginn
Sendifulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Norður-Kóreu segir norðurkóresk stjórnvöld hafa hundsað allar beiðnir Bandaríkjamanna um viðræður. Búist er við að einræðisríkið geri sína sjöundu kjarnorkutilraun í bráð.
Lengri umfjöllun:
Fyrsti fundur nýkjörinnar Borgarstjórnar Reykjavíkur var haldinn í Ráðhúsinu við Tjörnina í dag. Þar komu saman 23 borgarfulltrúar - 13 borgarfulltrunar nýmyndaðs meirihluta; það er fimm frá Samfylkingu, fjórir fulltrúar Framsóknar, þrír frá Pírötum og einn frá Viðreisn. Og svo 10 fulltrúar minnihlutans - sex frá Sjálfstæðisflokki, tveir frá Sósíalistum, einn frá Vinstri Grænum og einn frá Flokki fólksins. Tæplega helmingur hópsins hefur ekki starfað á vettvangi borgarstjórnar áður - þeirra á meðal þau Árelía Eydís Guðmundsdóttir - einn af fjórum borgarfulltrúum Framsóknarflokksins og Friðjón R Friðjónsson - einn af sex borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Kristján Sigurjónsson ræðir við þau í beinni útsendingu.
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar stóð af sér vantrauststillögu með minnsta mögulega mun í dag. Forsætisráðherra landsins hafði varað við stjórnarkreppu, mitt í umsóknarferli Svíþjóðar að NATO, og aðeins þremur mánuðum fyrir kosningar. Kristján Sigurjónsson talar við Kára Gylfason í Gautaborg.
Mjög skiptar skoðanir hafa verið á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra og sá ágreiningur gæti jafnvel valdið því að þinglok dragist fram á sumarið en þau voru ráðgerð í lok næstu viku. Það tengist ekki því frumvarpi, en Alþingi hef