Félagsdómur telur að verkfall Eflingar á morgun sé lögmætt. Það nær hótelþrena sem starfa á öllum hótelum og gistiheimilum á félagssvæði Eflingar. Eigendur og æðstu stjórnendur hótela ætla að hlaupa í störf þernanna en ljóst er að starfsemi þeirra raskast á morgun.
Framkvæmdastjóri SA segir að verkfallið sé áfall fyrir hagkerfið í heild. Aldrei megi tala um verkföll af léttúð.
Uppljóstrar fá lagalega vernd með frumvarpi sem nefnd um tjáningarfrelsi leggur til. Nefndin vill líka breyta lögbanni á tjáningu og bæta réttarstöðu blaðamanna.
Yfirmaður bandaríska heraflans í Miðausturlöndum segir að baráttunni gegn vígasveitum Íslamska ríkisins sé langt í frá lokið.
Verð á lyfjum myndi lækka með aukinni samkeppni ef lausasölulyf yrðu leyfð í verslunum, segir formaður lausasölulyfjahóps Samtaka verslunar og þjónustu. Hann segir ekki hafa verið sýnt fram á fylgni eitrunartilfella og aukins frelsins í nágrannalöndunum.
Um 700 félagsmenn Eflingar fara í verkfall á morgun eftir að ljóst er að verkfallið er löglegt að mati Félagsdóms. Það hefst klukkan tíu í fyrramálið og lýkur á miðnætti. Það nær til hótelþerna sem starfa við þrif á hótelum og gistiheimilum á félagssvæði Eflingar. Það ríkti nokkur óvissa um niðurstöðu Félagsdóms. En kom hún formanni Eflingar á óvart? Arnar Páll Hauksson segir fá. Ræðír við Sólveigu Jónsdóttur og Ingibjörgu Ólafsdóttur.
NPA gerir mér kleift að mæta seint í skólann. Þetta segir Ásthildur Jóna Guðmundsdóttir, 24 ára háskólanemi. Hún er búin að vera með notendastýrða persónulega aðstoð í fjögur ár. Aðstoðarkona hennar segist stundum gleyma því að hún sé í vinnunni. Spegillinn heldur áfram umfjöllun sinni um notendastýrða persónulega aðstoð, NPA. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Ásthildi Jónu Guðmundsdóttur og Silvíu Ösp Símonardóttur.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að nýju útboði vegna Ferðaþjónustu fatlaðra. Ekki hefur enn verið útkljáð hvernig kostnaði verður skipt milli sveitarfélaganna. Þá er stefnt að því að með nýju útboði náist að lækka heildarkostnaðinn sem nam um 1,7 milljörðum króna í fyrra. Sveitarfélögin sameinuðust um þessa þjónustu 2015 en til að byrja með gekk ekki mjög vel. Arnar Páll Hauksson talar við Erlend Pálsson
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Jón Þór Helgason.