Spegillinn 7.nóvember 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Þingmaður Viðreisnar segir vafa á því hvort lífeyrissjóðir hafi heimild eða umboð til að semja um að taka á sig skuldir Íbúðalánasjóðs. Fráleitt sé að tala um samningaviðræður við Lífeyreyrissjóði um afleita stöðu ÍL-sjóðs ef þær eigi að fara fram undir hótunum um lagasetningu frá ríkisstjórninni.
Viðbúið er að fasteignagjöld hækki mikið um áramótin. Mörg sveitarfélög virðast ekki ætla að bregðast við hækkun fasteignamats með því að lækka álagsprósentu. Óbreytt prósenta á að skila Reykjavíkurborg yfir þremur milljörðum króna í auknar skatttekjur.
Bandarísku þingkosningarnar á morgun gætu haft mikla þýðingu fyrir Donald Trump. Hann daðrar mjög við forsetaframboð eftir tvö ár en liggur enn undir feldi.
Taka þarf á nauðung og þvingun í regluverki í málefnum aldraðra að mati dósents við Háskóla Íslands. Fimm prósent íbúa hjúkrunarheimila er í fjötrum daglega.
Lengri umfjöllun:
Það má segja að spjót hafi staðið á Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags- og vinnumálaráðherra Vinstri grænna í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Fyrst krafði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir í Viðreisn hann svara um afstöðu sína til slæmrar stöðu Íbúðalánasjóðs - eða ÍL sjóðs - eins og við heyrðum í fréttahluta Spegilsins og síðan spurði Andrés Ingi Jónsson Pírötum Guðmund Inga út í umdeilda brottvísun hælisleitenda í fyrri viku og einkum fatlaðs manns í þeim hópi.
Áhyggjur af efnahagsmálum, verðhækkunum og auknu ofbeldi setja svip sinn á þingkosningar í Bandaríkjunum á morgun. Skoðanakannanir hafa sýnt að dagurinn verður Demókrötum erfiður. Ásgeir Tómasson segir frá.
Í síðustu viku var kosið til þings í Ísrael í fimmta sinn á fjórum árum og allt stefnir í að Benjamín Netanyahu verði forsætisráðherra á ný eftir rúmlega árs setu í stjórnarandstöðu. Dahlia Scheindlin, stjórnmálaskýrandi hefur fjallað um og rannsakað ísraelsk stjórnmál í rúmlega tuttugu ár. Björn Malmquist ræddi við Scheindlin um niðurstöður kosninganna og stjórnina sem er í burðarliðnum og talið er að gæti orðið sú hægrisinnaðasta nokkru sinni í Ísrael.