Donald Trump tilkynnir í kvöld hvort hann standi við kjarnorkusamninginn við Íran. Láti Trump verða af hótunum sínum gæti það þýtt stríð í Mið-Austurlöndum að mati sérfræðinga.
Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, óskaði í dag eftir því að laun hennar verði lækkuð afturvirkt frá 1. janúar síðastliðinum og verði til samræmis við úrskurð Kjararáðs síðan árið 2017.
Fáir nýútskrifaðir lífeindafræðingar fást til starfa hjá ríkinu og meðalaldur þeirra sem þar starfa er 55 ár. Formaður félags lífeindafræðinga segir það áhyggjuefni að ekki verði unnt að manna sérfræðistörf í heilbrigðiskerfinu með fagfólki.
Umhverfisráðherra sagði á Alþingi í dag að vilji væri til þess hjá ríkisstjórninni að skoða borgarlínu með Reykjavíkurborg.
Donald Trump hefur frest til vikuloka til að draga Bandaríkin út úr kjarnorkusamningi við Íran. Er jafnvel talið að hann kynni ákvörðun sína í kvöld. Láti Trump verða af hótunum sínum gæti það þýtt stríð í Mið-Austurlöndum. Alþjóðasamfélagið hefur reynt allt til að koma í veg fyrir mál þróist á versta veg en vonir til þess fara óðum þverrandi. Pálmi Jónasson fjallar um málið í Speglinum.
Eldingum lýstur niður í raflínur og haustlægðir valda usla í uppstöðulónum, jöklarnir bráðna, rennsli í jökulám eykst og þar með getan til að framleiða rafmagn, eins gott kannski ef í hönd fer meiriháttar rafvæðing í samgöngum og iðnaði. Er raforkukerfið búið undir loftslagsbreytingar? Arnhildur Hálfdánardóttir talar í Speglinum við Óla Grétar Blöndal Sveinsson og Guðmund Inga Ásmundsson.
Áætlanir Theresu May forsætisráðherra um tollabandalags-fyrirkomulag eru ,,galnar.“ Þessi tæpitungulausa gagnrýni kemur frá Boris Johnson utanríkisráðherra. Theresa May forsætisráðherra er í slæmri Brexit-klípu milli Brexit-sinnaðrar stjórnar og ESB-sinnaðs þings. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið í Speglinum.
Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson
Tæknimaður: Magnús þorsteinn Magnússon