Spegillinn

Spegillinn 8. október 2018


Listen Later

Áætlaður kostnaður við úrbætur á kísilveri United Silicon er nú rúmum milljarði hærri en áður var talið. Ástæðan er meðal annars sú að íbúum í grenndinni þóttu hráefnisgeymslur svo ljótar. Stígur Helgason ræðir við Þórð Ólaf Þórðarson, stjórnarformaður Stakkbergs.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar ætlar ekki að höfða meiðyrðamál vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræðir við Bjarna Má Júlíusson.
Það er mat innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar að Orkuveitan hafi orðið fyrir opinberri smánun á samfélagsmiðlum. Valgerður Anna Jóhannsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands segir eðlilegt að mál fyrirtækisins hafi átt erindi við almenning og veltir því upp hvort hægt sé að tala um opinbera smánun fyrirtækis. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Valgerði Önnu.
Skólastjóri stærsta sérskóla fyrir nemendur með fatlanir og þroskahamlanir á Íslandi á erfitt með að fá sérkennara til starfa. Endurnýjun sérkennara er nánast engin. Birgir Þór Harðarson segir frá og ræðir við Sædísi Harðardóttur, formann Félags íslenskra sérkennara og Árna Einarsson, skólastjóra Klettaskóla.
Erik Solheim, forstjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sagði af sér í dag vegna mikillar óánægju innan Sameinuðu þjóðanna með ferðalög hans.
Á alþjóðadegi barna brá Alex Lúðvík Kristinsson fimmtán ára liðsmaður Krakkafrétta sér í Laugarnesskóla og spjallaði við börn þar um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna.
-----
Ásakanir um óheilbrigða vinnustaðamenningu urðu til þess að innri endurskoðun borgarinnar var fengin til að gera útttekt á Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum. Uppsagnir tveggja starfsmanna sem styr hefur staðið um voru þar taldar réttmætar. Gyða Margrét Pétursdóttir er dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands, Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gyðu Margréti um Orkuveitumálið og Metoo-hreyfinguna.
Húsið sem hýsa átti Lækningaminjasafnið á Seltjarnarnesi liggur undir skemmdum. Átta ár eru síðan það var gert fokhelt en Seltjarnarnesbær hætti við að nota það fyrir lækningaminjar. Arkitektarnir sem hönnuðu það segja sárt að sjá húsið drabbast niður. Bergljót Baldursdóttir gekk um húsið með arkitektunum Ásdísi Helgu Ágústsdóttur og Sólveigu Berg.
Ef árangur næst ekki í kjaraviðræðum VR og Starfsgreinasambandsins á næstu vikum er líklegt að deilunni verði vísað til sáttasemjara og byrjað að undirbúa aðgerðir. Arnar Páll Hauksson segir frá stöðunni.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Gunnlaug Birta Þorgr
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners