Spegillinn

Spegillinn 8. október 2020


Listen Later

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir tímaspursmál hvenær faraldurinn berst yfir í eldra fólk og viðkvæma hópa. Nýgengi innanlandssmita er nálægt 200 samkvæmt nýjustu tölum. Þrír eru í öndunarvél á gjörgæslu með covid-19. Ingvar Þór Björnsson sagði frá, Bjarni Rúnarsson tók saman.
Ekki er tímabært að loka grunnskólum og senda nemendur heim þrátt fyrir vaxandi fjölda smita í samfélaginu. Þetta segir Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands. Hátt í hundrað börn á aldrinum 6 til 17 ára eru nú í einangrun. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður félags Grunnskólakennara segir miklu skipta að halda daglega rútínu. Höskuldur Kári Schram ræddi við þau.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki ætla að að eyða tíma sínum í rafrænar kappræður við Joe Biden forsetaefni Demókrata.
Guðmundi Guðlaugssyni, sem sat saklaus í einangrun í tíu daga vorið 2010, voru í sumar dæmdar 5,6 milljónir í bætur fyrir tekjutap. Fleiri bótamál hans á hendur ríkinu upp á tugi milljóna eru nú fyrir dómi. Stígur Helgason sagði frá.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vissi ekki af því að nafn hans væri að finna á umdeildum undirskriftalista þar sem hvatt er til þess að sóttvarnaaðgerðir í heiminum verði mildaðar.
Rúmenar og Íslendingar eigast í kvöld við á Laugardalsvelli í umspili um sæti á EM karla í fótbolta. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir frá byrjunarliði Íslendinga.
-------------
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands segir að kennurum sé mörgum ekki rótt vegna þess hve erfitt er að koma við sóttvörnum í kennslu. Svo virðist sem tengsl séu milli vanlíðunar og þess hvort fólk hefur stjórn á aðstæðum sínum í vinnu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ragnar.
Tæplega 15 þúsund færri starfsmenn fyrirtækja sem tengjast ferðaþjónustu fengu greidd laun í ágúst en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni fækkaði þeim sem fengu greidd laun í flestum atvinnugreinum. Hins vegar fjölgar mest í opinbera geiranum eða um rúmlega sex þúsund. Arnar Páll Hauksson ræddi við Kristínu Arnórsdóttur sérfræðing á Hagstofunni.
Í Noregi er því spáð að heimsfaraldurinn vegna kórónuveirunni marki endalokin á rekstri fríhafna á helstu flugvöllum landsins. Að fók fái aldrei aftur að kaupa áfengi á niðursettu verði eftir að það stígur út úr millilandaflugvélum. Gísli Kristjánsson útskýrir málið.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners