Vindhviður við fjöll á norðanverðu landinu geta náð 40 til 50 metrum á sekúndu. Veðurstofan spáir jafnvel ofsaveðri í Eyjafirði og víðar fyrir norðan. Íbúar þar og á Austurlandi eru hvattir til að huga að lausum hlutum sem gætu fokið og valdið tjóni. Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út í Eyjafirði og á Norðurlandi eystra. Hiti komst í 18 gráður á Dalatanga í dag.
Formaður VR segir að í næstu viku skýrist til muna hver framvindan verði í kjaraviðræðum. Samninganefndir VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins funduðu hjá ríkissáttasemjara í dag.
Breska stjórnin verður að kynna viðbrögð sín innan þriggja daga ef svo fer að samningur hennar við Evrópusambandið um Brexit verður felldur á þingi í næstu viku. Þetta var samþykkt í dag við lítinn fögnuð íhaldsþingmanna.
Ljósmóðir í Efra-Breiðholti segir dæmi um að ósjúkratryggðar konur sleppi mikilvægum rannsóknum á meðgöngu.
Að fæða barn á Íslandi getur kostað ósjúkratryggða konu tvær milljónir. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Sólveigur Jóhannsdóttur ljósmóður, Ingibjörgu Hreiðarsdóttur, yfirljósmóður og Eddu Ólafsdóttur, sérfræðing í málefnum innflytjenda.
Mannrán skekur nú Noreg. Ekkert hefur spurts til Anne Elisabeth Falkvik Hagen frá því fyrir 10 vikum eða frá 31. nóvember. Talið er að mannræningjar hafi rænt henni á heimili hennar í Fjellhammer. Krafist er yfir milljarðs launargjalds. Anne Elisebeth er 68 ára og einingkona eins ríkasta manns Noregs. Arnar Páll Hauksson talar við Gísla Kristjánsson í Ósló.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Davíð Berndsen.