Bæði maðurinn og konan sem voru handtekin á vettvangi brunans á Selfossi, þar sem tvennt lést, tjáðu lögreglu á vettvangi að maðurinn hefði kveikt í húsinu. Í skýrslutöku upplýsti konan svo að hún hefði séð manninn leggja eld með kveikjara að gardínu aftan við sófa í stofunni.
Þórarinn Guðnason formaður Læknafélags Reykjavíkur segir að nánast allir starfandi sérgreinalæknar á landinu hafi tilkynnt Sjúkratryggingum Íslands að þeir ætli ekki að starfa samkvæmt rammasamningi þeirra og Sjúkratrygginga frá og með áramótum. María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga telur ekki líklegt að búið verði að semja um áramótin. Samningurinn rennur þá út en ákvæði er í honum sem gerir kleift að framlengja hann um mánuð í senn. Þórarinn segir að það ákvæði hafi verið sett í samninginn til að tryggja áframhaldandi starfsemi á meðan verið er að semja og þegar einhverjar vikur vanti upp á að náist saman.
Samherji ætlar að sækja bætur vegna aðgerða Seðlabankans gegn félaginu. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri krefst brottvikningar Seðlabankastjóra. Hæstiréttur felldi í gær úr gildi fimmtán milljóna króna stjórnsýslusekt sem Seðlabankinn lagði á Samherja fyrir brot á gjaldeyrislögum. Þar með lýkur sex og hálfs árs sögu sem hófst með húsleitum vorið 2012 vegna gruns um mun viðameiri brot.
Ávinningur þjóðarbúsins af friðlýstum svæðum og nærsamfélögum þeirra var 33 milljarðar í fyrra samkvæmt fyrstu rannsókn sem gerð hefur verið hér á landsvísu á slíku. Rætt er við Sigurð Jóhannesson, forstöðumann Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands og Kristinn Jónasson, bæjarstjóra Snæfellsbæjar
Eftir lága vexti víða á Vesturlöndum hafa vextir aftur farið hækkandi, einnig á Íslandi. Um leið eru seðlabankar í naflaskoðun um hlutverk sitt og viðmiðanir.
Seðlabankinn hækkaði í vikunni skammtímavexti um 0,25 prósentur, í 4,5 prósent. Þetta er gert á þeim grundvelli að þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt á seinni hluta ársins spáir bankinn nú 4,4 prósenta hagvexti sem er heilu prósentustigi yfir spá bankans frá í ágúst. Sigrún Davíðsdóttir tók pistilinn saman
Loftslagsfótspor ferðaþjónustunnar á eftir að stækka á næstu árum vegna aukinna ferða vesturlandabúa í leit að ævintýrum. Mikilvægt er að hér á landi verði dregið úr losun frá flugi og að bílaflotinn verði rafvæddur. Þetta er mat verkefnisstjóra umhverfis- og auðlindamála hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Rætt er við Önnu G. Sverrisdóttur, verkefnisstjóra Umhverfis- og auðlindamála hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
Umsjónarmaður Bergljót Baldursdóttir