Landspítalinn mun tilkynna hópsýkinguna á Landakoti til Landlæknis sem alvarlegt atvik. Forstjóri Landspítalans segist ekki búast við að málið verði tilkynnt til lögreglu en vill þó ekki fullyrða um það. Stígur Helgason tók saman, Þórhildur Þorkelsdóttir ræddi við Ölmu Möller og Pál Matthíasson.
Þróun bóluefnis gegn COVID-19 hjá tveimur bandarískum lyfjafyrirtækjum er jákvætt og mikilvægt skref segir Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalæknir sem telur að bóluefnis megi vænta með vorinu.
Mikið álag er á sjúkrahúsinu á Akureyri en þar liggja nú sex sjúklingar vegna COVID-19. Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins segir helgina hafa verið erfiða en auk þriggja nýrra innlagna vegna COVID-19 eru tveir á gjörgæslu vegna bílslyss sem varð í Öxnadal á föstudaginn. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við hann.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Portúgal vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Sóttvarnareglur hafa einnig verið hertar í Ungverjalandi. Ásgeir Tómasson segir frá.
Ótti við að smitast af COVID 19 er meiri hjá landsmönnum en áður. Þetta sýnir Þjóðarpúls Gallups. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman.
Ekki verður flogið með farþega milli Íslands og Grænlands um ófyrirséða framtíð. Grænlendingar lokuðu á allt farþegaflug nema frá Danmörku. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá.
Söngvari Shu-bi-dua, einnar vinsælustu hljómsveitar Danmerkur, er látinn. Bogi Ágústsson sagði frá.
-------
Ekki er ljóst hvernig á að afgreiða umsóknir um vindorkuver. Meira en þrjátíu umsóknir hafia verið lagðar fram.
Orkustofnun telur að vindorkuver heyri ekki undir rammaáætlun en Landsvernd telur að svo sé. Arnar Páll Hauksson ræddi við Guðna A. Jóhannesson forstjóra Orkustofnunar.
Í dag sýndi fólk í Pólland enn á ný hvaða hug það ber til úrskurðar stjórnlagadómstóls landsins um að þungunarrof vegna fósturgalla sé ekki í samræmi við stjórnarskrá landsins. Undanfarnar vikur hafa tugir jafnvel hundruð þúsunda safnast saman, þrátt fyrir Covid-19 og sóttvarnartakmarkanir á götum og torgum Varsjár og fleiri borga til að mótmæla þessari ákvörðun en líka til að andæfa ríkisstjórninni og stjórnarflokknum Lögum og rétti. Wiktoria Joanna Ginter, er frá Póllandi hún hefur búið hér lengi en fylgist vel með gangi mála i heimalandinu og segir að mótmælin séu mjög kröftug. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Wiktoríu.
Norska ríkisstjórnin er hætt frekari stuðningi við flugfélagið Norwegian. Við þessi tíðindi urðu hlutabréf í félaginu nær verðlaus og það færðist nær gjaldþroti. Hrun hefur orðið í starfssemi Norwegian eftir að heimfaraldurinn vegn