Theresa May forsætisráðherra Bretlands segir að draga verði Bashar al-Assad Sýrlandsforseta og þá sem styðja hann til ábyrgðar, reynist rétt að árás með eiturgasi hafi verið gerð á íbúa bæjarins Douma.
Velferðarráðherra segir að úrræði fyrir ungmenni sem glíma við fíkn verði komið í gang innan tveggja vikna. Foreldrar 17 ára barns sendu neyðarkall á alla þingmenn í morgun. Þar gagnrýndu þau harðlega úrræðaleysi fyrir börn með fíknivanda.
Formaður Landssambands kúabænda segir samþykkt kúabænda á aðalfundi um áframhaldandi framleiðslustýringu í mjólkurframleiðslu vera afgerandi skilaboð til stjórnvalda við endurskoðun búvörusamninga.
Og við heyrum í besta söngvara hafdjúpanna í Speglinum.
Aldrei fyrr hafa jafnmargir flokkar eða framboð lýst yfir framboði í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík og þann 26. maí í vor. Eins og staðan er nú er útlit fyrir að 14 listar verði í kjöri. Kristján Sigurjónsson talar við Evu H. Önnudóttur dósent í stjórnmálafræði við HÍ.
Hæstaréttarlögmaður telur að miðað við ákvæði laga um þjónustukaup gæti bótaskylda hvílt á leigusala vegna tjóns á búslóðum í geymslunum sem eyðilögðust í eldi í Garðabæ fyrir helgi. Glæður í rústunum og hætta á hruni hafa tafið lögreglurannsókn í dag. Arnar Páll Hauksson talaði við Guðna Haraldsson hæstaréttarlögmann.
Í dag eru liðin eitt hundrað ár frá fæðingu danska arkitektsins Jørn Utzon, mannsins sem teiknaði eina þekktustu byggingu sem reist var á síðustu öld, Óperuhúsið í Sydney. Borgþór Arngrímsson segir frá.