Forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur áhyggjur vegna yfirvofandi verkfalla BSRB. Hann segir að vegna COVID-19 veirunnar þurfi heilbrigðisstofnanir á öllu sínu fólki að halda. Hann hvetur aðila til að semja
Tíu greindust í dag með COVID19 veiruna. Alls hafa því 26 greinst hér á landi . Á fjórða hundrað manns eru í sóttkví.
Michael Bloomberg hefur ákveðið að hætta við framboð sitt í forkjöri Demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember.
Stjórnvöld stefna að því að árið 2030 verði helmingi færri undir fátæktarmörkum en nú. Félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar vill leggja Tryggingastofnun niður og koma í veg fyrir að fólk eigi á hættu að verða tekjulaust mánuðum saman.
Út frá reglum sem gilda um réttindi flugfarþega er ekki hægt að gefa skýr svör um réttindi þeirra sem settir eru í stóttkví erlendis og missa af flugi heim.