Spegillinn

Stjórnvöld ræða við aðila vinnumarkaðarins


Listen Later

Stjórnvöld hafa í dag rætt við aðila vinnumarkaðarins vegna stöðunnar sem nú er komin upp á vinnumarkaði. Búist er við að fundað verði um helgina. Forsætisráðherra segir átök á vinnumarkaði það síðasta sem þurfi í miðjum heimsfaraldri og efnahagslægð.
Ráðist verður fljótlega í endurskoðun á meðferð hælisumsókna. Skoða þarf kerfið í heild sinni. Þetta segir dómsmálaráðherra.
Nýr leki afhjúpar enn á ný hvernig stórir bankar styðja glæpi og svik með því að veita þeim, sem véla með illa fengið fé, þjónustu.
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna sakar öryggissveitir stjórnvalda í Venesúela um að hafa orðið yfir tvö þúsund stjórnarandstæðingum að bana það sem af er þessu ári. Flest fórnarlömbin eru ung að árum.
Átta mismunandi tegundir myglusveppa greindust í húsnæði Fossvogsskóla fyrr í þessum mánuði.
Stjórnvöld hafa í dag rætt við aðila vinnumarkaðarins og búist er að það samtal haldi áfram um helgina. Ljóst er að stjórnvöld hafa miklar áhyggjur af því ef allt fer í bál og brand á vinnumarkaði í haust og hér logi allt í vinnudeilum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM segir að ef SA riftir kjarasamningum geti það ógnað bæði félagslegum og efnahagslegum stöðugleika í landinu. Forseti ASÍ segir að ef atvinnurekendur segi upp samningum séu þeir að bjóða upp á mikinn ófrið á vinnumarkaði. Formaður VR segir miklar líkur á að staðan á vinnumarkaði verði mjög erfið verði kjarasamningum sagt upp. Ábyrgð Samtaka atvinnulífsins sé mikil. En hvernig horfið málið við formanni BHM. Arnar Páll Hauksson talar við Þórunni Sveinbjarnardóttur og Ragnar Þór Ingólfsson.
Þetta er að verða fastur liður: efni úr leka eða frá uppljóstrara sýnir hvernig bankar, í samspili við aflandsvæðingu, veita viðskiptavinum með illa fengið fé þjónustu. Bankarnir birta nánast orðrétt fyrri yfirlýsingar um að nú hafi þeir tekið sig á. Nýr leki frá bandarískri eftirlitsstofnun sýnir að varnir gegn peningaþvætti eru mjög haldlitlar því bankarnir telja sig fylgja reglum um leið og þeir gæta þess vandlega að líta framhjá samhengi viðskiptanna. Við fyrstu sýn er ekki að sjá að Íslendingar eða íslensk félög komi við sögu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Aðskilnaður í sænska skólakerfinu hefur aukist hratt síðustu tíu ár. Fjórði hver grunnskólanemandi í Svíþjóð er nú í skóla þar sem greinilegur aðskilnaður ríkir hvað varðar uppruna og menntunarstig foreldra. Borås er ríflega hundrað þúsund manna borg skammt austur af Gautaborg, þekkt fyrir textílframleiðslu og dýragarð sem þar er. Tæpur þriðjungur þeirra sem búa í Borås fæddist erlendis eða á for
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners