Spegillinn

Stýrivaxtahækkun og 100 ára afmæli Hæstaréttar Íslands


Listen Later

Spegillinn 9. febrúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Mark Eldred.
Fjármálaráðherra segir að taka verði miklar launahækkanir með í umræðuna um verðbólguna og hvernig hún þrengi að kjörum heimilanna sem hafi ekki verið betri en nú. Hann segir vextina núna sambærilega þeim sem voru fyrir faraldurinn.
Stýrivaxtahækkunin kemur mest niður á þeim sem keyptu nýlega sína fyrstu fasteign. ASÍ hefur kallað eftir því að öðrum stjórntækjum en stýrivöxtum verði beitt til að hemja fasteignamarkaðinn.
Fjölmenn mótmæli hafa verið í Minneapolis eftir að lögreglan skaut tuttugu og tveggja ára svartan karlmann til bana í heimahúsi í borginni. Lögreglan nýtti þar heimild til að fara inn í íbúð án þess að banka.
Ekki gengur að taka hjálpartæki af fólki þegar það fer á hjúkrunarheimili segir deildarstjóri hjá Sjúkratryggingum. Úrbætur séu framundan varðandi létt lungnatæki og fleiri hjálpartæki.
Á hundrað árum hefur stundum gustað um Hæstarétt þó að lengst af hafi ríkt um hann friður. Fjallað verður um sögu réttarins í Speglinum
Lengri umfjöllun:
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun um 0,75 prósentustig. Þeir eru nú orðnir 2,75 prósent. Vextirnir eru hækkaðir í skugga vaxandi verðbólgu. Ýmsir hafa hvatt Seðlabankann til að hækka ekki stýrivexti, svo sem forseti Alþýðusambands Íslands sem sendi peningastefnunefnd bankans bréf þess efnis í gær. Seðlabankinn spáir fimm prósenta verðbólgu á þessu ári, sem er tvöfalt verðbólgumarkmið bankans. Hann gerir ráð fyrir enn meiri verðbólgu á fyrsta ársfjórðungi, 5,8 prósentum. 5,7 prósenta verðbólgan sem mældist í síðasta mánuði er sú mesta frá því í apríl 2012.
Bjarni Rúnarsson ræddi stýrivaxtahækkunina við þau Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins og Róbert Faresveit, sviðsstjóra stefnumótunar og greininga og hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands.
Hæstiréttur varð hundrað ára í fyrra og var aldarafmæli hans meðal annars merkt með útgáfu sögu réttarins sem Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur skrifar. Á hundrað árum hefur á stundum gustað um Hæstarétt þó að lengst af hafi ríkt um hann friður. Arnþór sér nokkur líkindi með átökum sem tengjast skipan dómara bæði á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar, skömmu eftir stofnun hans, og svo deilum um dómaraskipan um og upp úr aldamótunum síðustu. Á báðum tímabilum hafi stjórnmálamenn sótt svo hart að réttinum að halda megi því fram að vegið hafi verið að sjálfstæði dómsvaldsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Arnþór Gunnarsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners