Spegillinn

Stýrivextir, Líbanon og ný Ölfusárbrú


Listen Later

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kynnt að fólk liti þróun mála ekki alveg sömu augum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Unu.
Um 350.000 manns, þar af rúmlega 120.000 börn, hafa þegar flúið heimili sín í sunnaverðu Líbanon vegna harðra og viðvarandi loft- og flugskeytaárása Ísraela undanfarna daga og innrásar landhersins í kjölfarið. Staðfest er að hátt í hundrað börn hafi fallið í árásum undanfarinna daga og mörg hundruð særst. Ljóst sé að frekari stigmögnun átaka muni gera hörmulega stöðu barna í Líbanon enn verri. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta einungis staðfesta það sem lengi hefur verið vitað: Að stríðsátök bitni iðulega verst á þeim sem síst skyldi og minnsta bera ábyrgðina - börnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Birnu.
Smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá hefur lengi verið í undirbúningi, farið var í mat á umhverfisáhrifum og frumhönnun á árunum 2007 og 8, verkið loks boðið út í fyrra og því ferli ekki lokið segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunar hjá Vegagerðinni. Beðið er lokaheimilda frá fjármálaráðuneytinu til að ljúka samningum við þá einu sem gerðu tilboð. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

153 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners